Bæjarráð, fundur 231
1. febrúar 2011, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. Gjaldskrá bókasafnanna
Mál 1012139 Allur ferill málsins
Breyting á gjaldskrá bókasafnanna í Fjarðabyggð frá 1.mars 2011. Vísað frá atvinnu- og menningarnefnd. Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá.
-
2. Ferjusiglingar Mjóifjörður
Mál 0912093 Allur ferill málsins
Bréf Vegamálastjóra frá 20.janúar vegna tillagna Vegagerðarinnar að breytingum á siglingum til Mjóafjarðar. Bæjarráð óskar eftir að Vegamálastjóri komi til Fjarðabyggðar og eigi fund með bæjarráði.
-
3. Atvinnumál á Stöðvarfirði
Mál 1007205 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf til íbúa og fyrirtækja á Stöðvarfirði en í því er óskað eftir umsjónaraðila með upplýsingamiðstöð.
-
4. Menningarstyrkir 2011
Mál 1101041 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað stjórnsýslustjóra vegna fyrirkomulags á skiptingu menningarstyrkja og vinnureglur um úthlutun styrkja.
-
5. Umsókn um styrk til kaupa á sjúkraþjálfunartækjum
Mál 1101225 Allur ferill málsins
Fyrirspurn vegna kaupa á búnaði á sjúkraþjálfunarstofu. Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni.
-
6. Innkaup á rekstrarvörum 2011
Mál 1101296 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Minnisblað fjármálastjóra frá 28.janúar vegna tillögu um samning vegna innkaupa á rekstrarvörum. Bæjarráð veitir fjármálastjóra heimild til að ganga til samninga samkvæmt tillögum í minnisblaði.
-
7. Þriggja ára áætlun 2012 - 2014
Mál 1101235 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins og lagði fram og fór yfir forsendur þriggja ára áætlunar Fjarðabyggar 2012 - 2014. Bæjarráð vísar þriggja ára áætlun til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
8. Fundargerðir félagsmálanefndar 2011
Mál 1101152 Allur ferill málsins
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 8 frá 24.janúar lögð fram.
-
9. Atvinnu- og menningarnefnd - 9
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 9 frá 27.janúar lögð fram