Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 176

15. desember 2009, kl. 08:00 til 12:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Undirbúningur fjárhagsáætlunar fyrir Fjarðabyggð - 2010

    Mál 0910092 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu Jóna Árný Þórðardóttir forstöðukona fjármála og Björgvin Valdimarsson sérfræðingur á fjármálasviði. Jóna gerði grein fyrir vinnulagi við fjárhagsáætlunarvinnuna og að allar nefndir hafi komið saman og fjallað um áætlunina. Jóna fór yfir áætlunina en hún er  framlögð með óbreyttum álagningarstofnum, gert er ráð fyrir 4,5 % hækkun verðbólgu og óbreyttri gengisvísitölu. Þóroddur Helgason fræðslustjóri kom inn á fundinn til að ræða áætlun og rekstur fræðslumála.  Ákveðið að halda fund í bæjarráði laugardaginn 19.desember kl.11:00 og bæjarstjórnarfund mánudaginn 21.desember kl.16:00.

  2. 2. Ársreikningar Hulduhlíðar og Uppsala

    Mál 0911099 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar.

  3. 3. Ósk um leigu á félagsheimilinu Skrúði

    Mál 0908092 Allur ferill málsins

    Rætt um breytingar á drögum að leigusamningi.

  4. 4. Leyfi fyrir aðstöðu í íþróttahúsinu fyrir Þorrablót 2010

    Mál 0912035 Allur ferill málsins

    Bréf þorrablótsnefndar Reyðfirðinga frá 7.desember og minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu frá 11.desember. Bæjarráð heimilar afnot af íþróttahúsi Reyðarfjarðar undir þorrablót Reyðfirðinga og felur mannvirkjasviði samskipti við nefndina.

  5. 5. Styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts

    Mál 0912018 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að reglum um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts.

  6. 6. Málefni björgunarsveitanna

    Mál 0912025 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu fulltrúar björgunarsveitanna í Fjarðabyggð þeir Pálmi Benediktsson og Stefán Guðjónsson frá Björgunarsveitinni Gerpi, Eiður Ragnarsson og Steinar Ísfeld frá Björgunarsveitinni Ársól, Grétar Helgi Geirsson frá Björgunarsveitinni Geisla og Bjarni Guðmundsson frá Björgunarsveitinni Brimrúnu. Framlagt minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu frá 14.desember um yfirlit yfir styrki til björgunarsveitanna frá árinu 2007. Farið var yfir helstu verkefni og hlutverk björgunarsveitanna og hvert hlutverk bæjarins er gagnvart sveitunum. Rætt um samræmd samskipti milli björgunarsveitanna og Fjarðabyggðar og einnig drög að reglum um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  7. 7. Sorpmál - Samstarf við Fljótsdalshérað

    Mál 0905099 Allur ferill málsins

    Minnisblað mannvirkjastjóra og starfandi umhverfisstjóra frá 14.desember er varðar umsókn frá Fljótsdalshéraði um framlengingu samnings um sorpurðun í Þernunesi.  Í ljósi minnisblaðs, sem ekki lá fyrir á síðasta fundi, samþykkir bæjarráð tillögu í minnisblaði um að urðunarleyfi Fljótsdalshéraðs í Þernunesi verði framlengt til 1.mars 2010.

  8. 8. Afnot af golfvelli á Eskifirði

    Mál 0911021 Allur ferill málsins

    Framlagðir minnispunktar frá fundum með formanni Golfklúbbsins Byggðaholts frá 17.nóvember, fyrrum formanni Golfklúbbs Eskifjarðar frá 19.nóvember og Landsbankanum frá 26.nóvember.  Bæjarstýru falið í samráði við lögmann að ganga frá málinu gagnvart Golfklúbbi Eskifjarðar.

  9. 9. Samningur við Rauða kross deildirnar í Fjarðabyggð

    Mál 0912054 Allur ferill málsins

    Framlagður samningur Fjarðabyggðar og Rauða kross deildanna í Fjarðabyggð vegna nýrra íbúa.

  10. 10. Samningur vegna reiðskemmu

    Mál 0909015 Allur ferill málsins

    Framlagðar upplýsingar frá aðstoðarmanni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er varða framlög til reiðskemmu í Norðfirði.

  11. 11. Borgarafundur um Norðfjarðagöng.

    Mál 0912061 Allur ferill málsins

    Framlögð ályktun borgarafundar um Norðfjarðagöng sem haldinn var 14.desember í Kirkju- og menningarmiðstöðinni Eskifirði. Bæjarráð felur forstöðumanni stjórnsýslu að senda ályktun til ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, samgöngu- og fjárlaganefndar Alþingis, þingmanna Norðausturkjördæmis og afrit til fjármálaráðuneytis.

  12. 12. Fundargerð mannvirkjanefndar nr.26

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  13. 13. Fundargerð mannvirkjanefndar nr.27

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  14. 14. Fundargerð hafnarstjórnar nr.65

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  15. 15. Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.38

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  16. 16. Fundargerð fræðslunefndar nr.24

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  17. 17. Fundargerð menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar nr.30

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.