Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2009

Málefni björgunarsveitanna

Mál 0912025 Fyrst á dagskrá 8. desember 2009, síðast 21. desember 2009. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2009

    Bæjarráð, fundur 175 liður 6

    Beiðni um fund með bæjarráði

    Beiðni Björgunarsveitarinnar Gerpis frá 3.desember um fund björgunarsveitanna í Fjarðabyggð með bæjarráði. Samþykkt að boða forsvarsmenn björgunarsveitanna á næsta fund.

  2. Bæjarráð, fundur 176 liður 6

    Þennan lið fundarins sátu fulltrúar björgunarsveitanna í Fjarðabyggð þeir Pálmi Benediktsson og Stefán Guðjónsson frá Björgunarsveitinni Gerpi, Eiður Ragnarsson og Steinar Ísfeld frá Björgunarsveitinni Ársól, Grétar Helgi Geirsson frá Björgunarsveitinni Geisla og Bjarni Guðmundsson frá Björgunarsveitinni Brimrúnu. Framlagt minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu frá 14.desember um yfirlit yfir styrki til björgunarsveitanna frá árinu 2007. Farið var yfir helstu verkefni og hlutverk björgunarsveitanna og hvert hlutverk bæjarins er gagnvart sveitunum. Rætt um samræmd samskipti milli björgunarsveitanna og Fjarðabyggðar og einnig drög að reglum um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  3. Bæjarstjórn, fundur 64 liður 6.6

    Fundargerðin „Bæjarráð - 175“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Beiðni um fund með bæjarráði

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 64 liður 7.6

    Fundargerðin „Bæjarráð - 176“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is