Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 177

19. desember 2009, kl. 11:00 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Undirbúningur fjárhagsáætlunar fyrir Fjarðabyggð - 2010

    Mál 0910092 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu Jóna Árný Þórðardóttir forstöðukona fjármála, Björgvin Valdimarsson sérfræðingur á fjármálasviði og Jóhann Eðvald Benediktsson mannvirkjastjóri. Jóna gerði grein fyrir vinnu og breytingum sem gerðar hafa verið á áætlun frá síðasta fundi og fór yfir einstaka málaflokka. Gerðar voru lagfæringar á áætluninni. Gögn vegna seinni umræðu í bæjarstjórn verða send bæjarfulltrúum þann 20.desember.

  2. 2. Gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar

    Mál 0912052 Allur ferill málsins

    Minnisblað mannvirkjastjóra frá 14.desember um tillögu mannvirkjanefndar um hækkun um 7,9% á gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar Eskifirði. Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum tillögu um hækkun á gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar. Valdimar O. Hermannsson er á móti.  Gjaldskrárstefna verður rædd í bæjarráði milli umræðna í bæjarstjórn.

  3. 3. Hækkun á sölugjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar

    Mál 0912051 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 14.desember og tillaga mannvirkjanefndar frá 10.desember um 3% hækkun á orkugjaldi í sölugjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar frá 1.janúar 2010. Bæjarráð samþykkir hækkun.

  4. 4. Opnunartími leikskóla Fjarðabyggðar

    Mál 0912046 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir tillögu fræðslunefndar um breyttan opnunartíma leikskóla frá 1.janúar 2010. Opnunartími leikskóla verður frá og með 1. janúar 2010 frá kl. 07:30 til 16:45 og börn geta dvalið í leikskólanum í fjórar til níu klukkustundir á dag.  Opnunartíminn frá kl. 7:30-7:45, 16:00-16:15, 16:15-16:30 og 16:30-16:45 er háður því að það séu a.m.k. 3 börn í vistun á viðkomandi tíma.  <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  5. 5. Fundargerð fræðslunefndar nr.25

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  6. 6. Fundargerð öldrunarþjónustunefndar nr. 16

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.