Bæjarráð, fundur 164
29. september 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 62 liður 4
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Löggæslumál í Fjarðabyggð
Mál 0909145 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu lögreglustjórinn á Eskifirði og yfirlögregluþjónn. Rætt um sparnaðarmarkmið ríkisins í löggæslumálum, hvað áhrif þau munu hafa á löggæslu í Fjarðabyggð og mikilvægi þess að breytingar í löggæslu verði kynntar íbúum.
-
2. Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Fjarðabyggðar.
Mál 2008-10-02-1590 Allur ferill málsins
Slökkviliðsstjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir meginbreytingar sem gerðar hafa verið á brunavarnaáætlunni frá því að farið var yfir fyrstu drög að áætluninni fyrr á árinu og hvaða áhrif breytingarnar hafa á tekjur og gjöld slökkviliðsins. Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að vísa brunavarnaáætlun Slökkviliðs Fjarðabyggðar með framkomnum breytingum til Brunamálastofnunar. Þorbergur Hauksson tók ekki þátt í afgreiðslu þessa liðar.
-
3. Hús áhugamálanna - Félagslundur
Mál 0909075 Allur ferill málsins
Beiðni RKÍ um afnot af Félagslundi undir starfsemi klúbba og tómstundastarfs fullorðinna. Frestað til næsta fundar.
-
4. Notkun á félagsheimilinu Valhöll
Mál 2009-02-10-194 Allur ferill málsins
Rætt um húsnæðismál Knellunnar. Unnið er áfram að flutningi Knellunnar í Valhöll.
-
5. Ósk um leigu á félagsheimilinu Skrúði
Mál 0908092 Allur ferill málsins
Bréf Gests Valgeirs Gestssonar og Bjarna Rafns Ingvasonar frá 11.9. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að ræða nánar við bréfritara.
-
6. Atvinnuuppbygging í Qeqqata
Mál 0909091 Allur ferill málsins
Fyrirspurn frá Qeqqata kommunia um samstarfsverkefni NORA vegna atvinnuuppbyggingar. Óskað eftir umsögn frá forstöðumanni mannauðsmála.
-
7. Beiðni um styrk til kaupa á listaverki eftir Tryggva Ólafsson
Mál 0909069 Allur ferill málsins
Bréf Magna Kristjánssonar frá 15.9. þar sem farið er fram á fjármagn til kaupa á listaverki af Akureyrarbæ eftir Tryggva Ólafsson sem prýtt hefur útvegg Egilsbúðar síðustu mánuði. Vísað til MÍF.
-
8. Ferðasjóður íþróttafélaga
Mál 0909079 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar áskorun frá framkvæmdastjóra KSÍ til menntamálaráðherra um að framlög í ferðasjóð íþróttafélaga verði ekki skorin niður. Bæjarráð tekur undir áskorun til ráðherra og vísar erindi til MÍF.
-
9. Aðalfundur HAUST 2009
Mál 0909088 Allur ferill málsins
Aðalfundur verður haldinn 28.10.2009 kl.14:00 í Fljótsdalshreppi.
-
10. Sparnaður í rekstri stoðstofnana og byggðasamlaga
Mál 0909132 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur um lækkun framlaga til stoðstofnana og byggðasamlaga og felur fjármálastjóra framkvæmd.
-
11. Samþykktir aðalfundar SSA 2009
Mál 0909130 Allur ferill málsins
Samþykktir frá aðalfundi SSA 2009 á Seyðisfirði lagðar fram til kynningar.
-
12. Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.34 frá 23.9.
Fundargerð lögð fram.
-
13. Fundargerð mannvirkjanefndar nr.22 frá 22.9.
Fundargerð lögð fram.
-
14. Fundargerð fræðslunefndar nr.21 frá 23.9.
Fundargerð lögð fram.
-
15. Fundargerð menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar nr.27 frá 21.9.
Fundargerð lögð fram.