Bæjarráð, fundur 163
22. september 2009, kl. 16:30 til 20:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 62 liður 3
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2009 - Hagræðingarhugmyndir
Mál 2009-01-23-102 Allur ferill málsins
Farið yfir hagræðingarhugmyndir með stjórnendahópi Fjarðabyggðar og varamönnum í bæjarráði þeim Guðmundi R. Gíslasyni, Jens Garðari Helgasyni og Þorbergi Haukssyni.
-
2. Ósk um niðurfellingu á húsaleigu í félagsheimilinu Skrúði vegna minningartónleika
Mál 0909055 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að fella niður húsaleigu vegna fyrirhugaðra minningartónleika sem haldnir verða 3.október nk.
-
3. Samningur vegna reiðskemmu
Mál 0909015 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að greiða 10 milljóna framlag sitt til reiðskemmu á Norðfirði samkvæmt lið 6.1. í samningi frá 2007 og jafnframt að aðstoða við fjármögnun 10 milljóna króna til viðbótar samkvæmt nánara samkomulagi við Hestamannafélagið Blæ.
-
4. Félagsheimilið Valhöll - leigusamningur
Mál 0908039 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning, dagsettan 1.10.2009, við Tandraberg um leigu á félagsheimilinu Valhöll Eskifirði.
-
5. Ársreikningur 2008
Mál 0909065 Allur ferill málsins
Ársreikningur SSA fyrir árið 2008 lagður fram til kynningar.
-
6. Sala á fasteigninni að Breiðabliki 11 í Neskaupstað
Mál 0908094 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir sölu á Breiðabliki 11 í Neskaupstað samkvæmt tilboði er lagt var fram í mannvirkjanefnd 21.9.
-
7. Fundargerð félagsmálanefndar nr. 24 frá 14.9.
Mál 0909076 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram.
-
8. Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.33 frá 16.9.
Fundargerð lögð fram.