Bæjarráð, fundur 162
15. september 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 62 liður 2
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Samningur vegna reiðskemmu
Mál 0909015 Allur ferill málsins
Fulltrúar hestamannafélagsins Blæs þeir Guðbjartur Hjálmarsson og Guðröður Hákonarson sátu þennan lið fundarins. Samkvæmt samningi milli Blæs og landbúnaðarráðuneytis þarf að hefja byggingu reiðskemmu í haust. Bæjarráð sammála um að leita allra leiða til þess að af byggingu geti orðið. Bæjarstýru falið að undirbúa málið fyrir næsta fund.
-
2. Aðbúnaður barna og starfsmanna á leikskólanum Sólvöllum
Mál 0909028 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra og fræðslustjóra frá 14.9. vegna framkvæmda við leikskólann Sólvelli. Minnisblaðið er framlagt vegna misvísandi umfjöllunar um málið síðustu daga. Mannvirkjastjóri og fræðslustjóri sátu þennan lið fundarins og fóru yfir framkvæmdir síðustu daga. Einnig var rætt um biðlista og málefni dagforeldra í Neskaupstað.
-
3. Fyrirspurn um bílastæði við sundlaug Norðfjarðar
Mál 0906071 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir aðgengismál við sundlaugina í Neskaupstað. Bæjarráð óskar eftir nánari útfærslu og kostnaðargreiningu frá mannvirkjasviði fyrir næsta fund.
-
4. Notkun á félagsheimilinu Valhöll
Mál 2009-02-10-194 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Framlagt minnisblað umsjónarmanns fasteigna frá 15.9. um mögulegan flutning félagsmiðstöðvarinnar Knellunnar á efri hæð gömlu bæjarskrifstofunnar að Strandgötu 49 Eskifirði. Bæjarráð sammála um að félagsmiðstöðin Knellan flytji í desember nk. Mannvirkjastjóra falið að segja upp leigusamningi vegna núverandi húsnæðis Knellunnar.
-
5. Félagsheimilið Valhöll - ósk um leigu
Mál 0908039 Allur ferill málsins
Tekið fyrir á næsta fundi.
-
6. Félagsheimilið Skrúður - ósk um leigu
Mál 0908092 Allur ferill málsins
Tekið fyrir á næsta fundi.
-
7. Sorpmál - Samstarf við Fljótsdalshérað
Mál 0905099 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu umhverfisstjóra um að mannvirkjastjóri, umhverfisstjóri og fjármálastjóri sitji í samráðshóp um urðunarmál f.h. Fjarðabyggðar. Guðmundur R. Gíslason tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.
-
8. Tilnefning varamanns í MÍF.
Mál 0909017 Allur ferill málsins
Þorbergur Hauksson tekur sæti sem varamaður B-lista í MÍF.
-
9. Vinabæjarsamskipti á norðurlöndum
Mál 0907052 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf borgarstjóra Jyvaskylka er varðar vinabæjarsamskipti. Bæjarráð sammála um að halda vinabæjarsamskiptum áfram og bæjarstýru falið að svara bréfi.
-
10. Aðalfundur SSA 2009
Mál 0906103 Allur ferill málsins
Framlögð dagskrá aðalfundar SSA sem haldinn verður 25. og 26.september á Seyðisfirði.
-
11. Atvinnuleysi í ágúst
Mál 0909049 Allur ferill málsins
Upplýsingar lagðar fram til kynningar.
-
12. Fundargerð öldrunarþjónustunefndar nr.13 frá 8.9.2009
Fundargerð lögð fram.
-
13. Fundargerð mannvirkjanefndar nr.21 frá 7.9.2009
Fundargerð lögð fram.
-
14. Fundargerð hafnarstjórnar nr.62 frá 8.9.2009
Fundargerð lögð fram.