Bæjarráð, fundur 161
8. september 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 62 liður 1
Til máls tóku: Helga Jónsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Jón Björn Hákonarson, Smári Geirsson, Guðmundur Rafnkell Gíslason.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Sjúkraflug um Norðfjarðarflugvöll
Mál 0908086 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri og Ársæll Þorsteinsson umdæmisstjóri Flugstoða á Austurlandi sátu þennan lið fundarins. Ársæll fór yfir stöðu flugradióþjónustu á Norðfjarðarflugvelli, flugbrautarþjónustu og framkvæmd snjóruðnings á vellinum. Vonast er til að lausir endar verði hnýttir fyrir lok mánaðarins. Norðfjarðarflugvöllur er fyrst og fremst sjúkraflugvöllur, þarf ákveðna þjónustu sem slíkur og því er mikilvægt að völlurinn verði skilgreindur sem sjúkraflugvöllur. Bæjarráð leggur áherslu á við Flugstoðir að samningum verði hraðað og klárað verði að setja ofaníburð í flugbrautina fyrir veturinn.
-
2. Aðbúnaður barna og starfsmanna á leikskólanum Sólvöllum
Mál 0909028 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Framlagt bréf foreldrafélags leikskólans Sólvalla frá 3.9. er varðar aðbúnað á leikskólanum Sólvöllum í Neskaupstað.
-
3. Framkvæmdir við lögn vatnsveitu í Neskaupstað
Mál 0908066 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 3.9.
-
4. Strandblakvellir fyrir ofan Starmýri
Mál 0909005 Allur ferill málsins
Beiðni Matthíasar Haraldssonar frá 1.9. um jarðvegsvinnu vegna tveggja strandblakvalla í Neskaupstað. Erindið var tekið fyrir á fundi mannvirkjanefndar 7.9. og hafnaði nefndin beiðninni.
-
5. Sex mánaða yfirlit 2009
Mál 0909018 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir sex mánaða yfirlit. Vonast er til að hægt verði að leggja fram átta mánaða uppgjör um miðjan október. Minnisblað verður lagt fyrir bæjarráð á næsta fundi.
-
6. Fundur sveitarstjórnar með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2009
Mál 0908102 Allur ferill málsins
Bæjarstýra mun fara á fund fjárlaganefndar 28.9. og verður greinargerð send bæjarráði fyrir þann tíma.
-
7. Samningur vegna reiðskemmu
Mál 0909015 Allur ferill málsins
Svar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis við fyrirspurn um stöðu mála vegna byggingu reiðskemmu í Norðfirði. Samkvæmt samningi frá 6.11.2007 á skemman að vera tilbúin til notkunar í nóvember 2010. Bæjarráð óskar eftir að fá fulltrúa Hestamannafélagsins Blæs á næsta fund ráðsins.
-
8. Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands
Mál 0909016 Allur ferill málsins
Ársreikningur og skýrsla stjórnar lögð fram til kynningar.
-
9. Félagsheimilið Valhöll - ósk um viðræður um leigu
Mál 0908039 Allur ferill málsins
Rætt um fyrirkomulag á rekstri og útleigu félagsheimilanna auk þess sem drög að leigusamningi vegna Valhallar voru lögð fram til kynningar. Tekið fyrir á næsta fundi.
-
10. Fundagerð 766. stjórnarfundar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Mál 0909012 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
11. Fundargerð 85. stjórnarfundar HAUST
Mál 0909010 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
12. Fundagerð félagsmálanefndar nr. 23 frá 31.8.
Mál 0909029 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram.