Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 165

6. október 2009, kl. 08:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Áhugamannafélag um endurbyggingu Gamla Lúðvíkshússins

    Mál 0909139 Allur ferill málsins

    Bréf áhugamannafélags um endurbyggingu Gamla Lúðvíkshússins frá 21.9. Bæjarráð fagnar framtaki félagsins og heimilar félaginu að vinna að endurbyggingu hússins og að vinna að öflun fjár til verkefnisins. Samskipti við húsafriðunarnefnd verði í samvinnu og samstarfi við umhverfis- og skipulagssvið.

  2. 2. Endurnýjun á öldubrjótum

    Mál 0909137 Allur ferill málsins

    Beiðni Sunddeildar Þróttar frá 21.9. um endurnýjun á öldubrjótum í Sundlaug Neskaupstaðar.  Vísað til fjárhagsáætlunar 2010.

  3. 3. Gjaldfrjáls útlán bókasafna

    Mál 0909128 Allur ferill málsins

    Bréf Samtaka bókasafna á Austurlandi frá 21.9. þar sem skorað er á rekstraraðila almenningsbókasafna að fella niður árgjöld. Vísað til fjárhagsáætlunar 2010.

  4. 4. Þjóðahátíð Austfirðinga 2009

    Mál 0909059 Allur ferill málsins

    Beiðni um styrk vegna Þjóðahátíðar Austfirðinga 2009 sem haldin verður á Vopnafirði 17.10.  Bæjarráð samþykkir að veita 50.000 kr. styrk.

  5. 5. Fundargerð 767. stjórnarfundar Sambands íslenskra sveitarfélaga

    Mál 0909149 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram til kynningar.

  6. 6. Atvinnuuppbygging í Qeqqata

    Mál 0909091 Allur ferill málsins

    Framlögð ódagsett umsögn forstöðumanns mannauðsmála vegna beiðni um að Fjarðabyggð taki þátt í samstarfsverkefni í Qeqqata. Bæjarráð samþykkir þátttöku að því gefnu að styrkur fáist í verkefnið frá NORA.

  7. 7. Málefni Golfklúbbs Eskifjarðar

    Mál 0906033 Allur ferill málsins

    Rætt um málefni Golfklúbbs Eskifjarðar.

  8. 8. Viðtalstímar bæjarfulltrúa veturinn 2009 - 2010

    Mál 0909140 Allur ferill málsins

    Framlagðar tillögur að fyrirkomulagi og auglýsingum  á viðtalstímum bæjarfulltrúa veturinn 2009-2010.  Bæjarráð samþykkir að viðtalstímar í vetur verði 29.október, 26.nóvember, 17.desember, 28.janúar, 25.febrúar, 25.mars og 29.apríl.

  9. 9. Aðalfundur Sjóminjasafns Austurlands

    Mál 0910021 Allur ferill málsins

    Aðalfundur verður haldinn 20.10. kl.16:00 í Gömlu Búð Eskifirði.  Díana Mjöll Sveinsdóttir verður fulltrúi á fundinum.

  10. 10. Samningur vegna reiðskemmu

    Mál 0909015 Allur ferill málsins

    Framlagðir minnispunktar bæjarstýru og Valdimars O. Hermannssonar frá 6.10. vegna fundar með landbúnaðarráðherra sem haldinn var 2.10.

  11. 11. Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.35 frá 30.9.

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.