Opið bréf til bæjarstjórnar og fræðslunefndar Fjarðabyggðar
Mál 1912155 Fyrst á dagskrá 6. janúar 2020, síðast 20. janúar 2020. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 9. janúar 2020, frá 0:04:40
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
- Upptaka af umræðu
-
2020
Bæjarráð, fundur 645 liður 4
Framagt bréf frá stjórn foreldrafélags Leikskólans Lyngholts til bæjarstjórnar og fræðslunefndar Fjarðabyggðar, er varðar stöðu starfsmannamála við leikskólann.
Bæjarráð þakkar erindið og bendir á að málefni leikskólans eru reglulega til endurskoðunar hjá sveitarfélaginu en í því sambandi má nefna að sveitarfélagið hefur lagt í nokkrar aðgerðir vegna þessa. Lagt fram til kynningar og vísað til umfjöllunar í fræðslunefnd.
-
Bæjarstjórn, fundur 283 liður 1.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 645“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Opinber fundargerð á fjardabyggd.is
Upptaka bæjarstjórnarfundar 283. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:04:40 alveg endanleg áhrif þeirra en reglurnar verða sem sagt teknar hérna fyrir til samþykktar á eftir undir lið fjögur í almenn mál liðið fjögur en lagt var fram bréf frá stjórn foreldrafélags leikskólans lynghólms á reyðarfirði sem sent var til kjörnafulltrúa í bæjarstjórnum og til fræðslunefndar bæjarráð þakkar erindið og bendir á að málefni leikskólans eru reglulega tilendiskonar hjá sveitarfélaginu en og í því sama
- 0:05:08 og í því sambandi má nefna að sveitarfélagið hefur lagt í nokkrar aðgerðir vegna þessa erindi verði tekið til ítarlegar umfjöllunar og skoðunar í fræðslunefnd í næstu viku það er alvarlegt hvaða lítill hluti af fagmenntuðu starfsfólki vinnur í leikskólum og þetta á því miður við um ekki bara hjá okkur heldur en á landsvísu en eins og fram kemur í bókambæjaráðs hafa málefni leikskólans veri reglulegar endurskoðun
- 0:05:36 leikskólans verið reglulegri endurskoðun og í ár þá má meðal annars nefna að það verður búið að auka skipulagsdögum að komi auka fjármagn í launapott hjá leikskólum og núna á þessu fundi erum við að afgreiða þessir nýju reglur um laun að námsliði fyrir starfsfólk í leikskólum við höfum á undanförnum árum einnig bætt húsnæðismálin hjá okkur og það eru nýbyggingar viðbyggingar og endurbætur en þetta er verkefni sem er unnin áfram og eru á áætlunum
-
Fræðslunefnd, fundur 78 liður 2
Framagt bréf frá stjórn foreldrafélags Leikskólans Lyngholts til bæjarstjórnar og fræðslunefndar Fjarðabyggðar, er varðar stöðu starfsmannamála við leikskólann. Bæjarráð hefur tekið erindið fyrir og vísað því til umfjöllunar í fræðslunefnd. Einnig liggur fyrir minnisblað um stöðu framkvæmda og ráðninga hjá leikskólanum Lyngholti. Fræðslunefnd þakkar fyrir bréfið og þær ábendingar sem þar koma fram. Eins og fram kemur í minnisblaðinu er stefnt að því að hægt verði að taka nýbyggingu við skólann í notkun um næstu mánaðarmót og þegar er hafin breyting á elsta húsnæði skólans og stefnt að því að ljúka þeim framkvæmdum í mars. Einnig kemur fram í minnisblaðinu að fullmannað sé á fimm deildum skólans og unnt að halda uppi góðu faglegu starfi á þeim deildum. Enn vantar tvo starfsmenn svo hægt verði að opna sjöttu deild skólans og taka inn börn sem fædd eru á árinu 2019. Auglýst hefur verið eftir starfsmönnum og skólastjórnendur gert allt sem í þeirra valdi stendur til þess að fullmanna skólann. Því miður hefur komið fyrir að loka hafi þurft deildum vegna manneklu og slíkt hefur ekki haft áhrif á leikskólagjöld. Þá hefur verið auglýst eftir dagforeldri, en engin umsókn hefur enn borist. Kjarasamningar eru lausir hjá starfsmönnum leikskóla og viðræður í gangi milli samningsaðila. Fræðslunefnd tekur undir með foreldrum um mikilvægi leikskólastigsins og mikilvægi þess að nægilega margir leikskólakennarar starfi í leikskólunum og vinni þar við góðar aðstæður. Nýbygging og endurbætur á eldra húsnæði Lyngholts er liður í því að bæta starfsumhverfið fyrir nemendur og starfsfólk og undanfarin ár hefur bæjarstjórn Fjarðabyggðar verið umhugað um að bæta vinnuaðstæður í leikskólum í Fjarðabyggð, má þar nefna nýlegan leikskóla á Fáskrúðsfirði, Kærabæ, nýjan leikskóla í Neskaupstað, Eyrarvelli og nýja leikskóladeild í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla sem tekin verður í gagnið á árinu. Á síðasta fundi bæjarstjórnar voru samþykktar reglur um námsstyrki til þeirra starfsmanna Fjarðabyggðar sem stunda nám í leikskólakennarafræðum. Þá verður á árinu skipulagsdögum fjölgað úr fimm í sex og fjölgað undirbúningstímum í leikskólum Fjarðabyggðar til að styðja við faglegt starf og einnig er forfallatímum fjölgað. Fræðslunefnd er sannfærð um að þetta séu skref í rétta átt, en betur má ef duga skal og mikilvægt er að vel takist til við gerð nýrra kjarasamninga.
-
Bæjarráð, fundur 647 liður 18.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 78“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.