Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

735 Leirubakki 4 - Byggingarleyfi, ferging lóðar

Mál 1904013 Fyrst á dagskrá 8. apríl 2019, síðast 20. janúar 2020. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdirLóðir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2019

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 230 liður 14

    735 Leirubakki 4 - Byggingarleyfi

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Eskju hf, dagsett 1. Apríl 2019, þar sem óskað er eftir heimild til að fergja hluta lóðar fyrirtækisins að Leirubakka 4 á Eskifirði. Eskja áformar að byggja síðar fyrsta áfanga frystigeymslu á lóðinni og mun þá fjarlægja farg og sækja um byggingarleyfi fyrir geymslunni.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að farg verði sett á lóðina. Skilyrt er að hæðir á lóðarmörkum nágrannalóða og vega verði mældar og skráðar áður en farg verður fært á lóðina og svo með reglulegum hætti á meðan farg er á lóðinni.

  2. Bæjarstjórn, fundur 267 liður 5.14

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 230“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    735 Leirubakki 4 - Byggingarleyfi

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. 2020

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 250 liður 7

    Lagður fram póstur Eskju hf, dagsettur 30. desember 2019, þar sem óskað er eftir heimild til að færa til farg innan lóðar fyrirtækisins að Leirubakka 4 á Eskifirði vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðinni. Hluti fargs mun ná út fyrir lóðarmörk.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að farg verði fært á lóðinni í samræmi við umsókn. Eins og áður er leyfi skilyrt við að hæðir á lóðarmörkum nágrannalóða og vega verði mældar og skráðar áður en farg verður fært á lóðinni og svo með reglulegum hætti á meðan farg er á lóðinni.

  4. Bæjarráð, fundur 647 liður 16.7

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 250“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is