Gjaldskrá Fjölskyldusviðs 2019 vegna stuðningsfjölskyldna við fötluð börn
Mál 1810085 Fyrst á dagskrá 23. október 2018, síðast 29. október 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Félagsmálanefnd.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Félagsmálanefnd, fundur 117 liður 4
Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá fyrir þjónustu stuðningsfjölskyldna við fötluð börn vegna 2019 en fjárhæð miðast við upphæð meðlags. Félagsmálanefnd vísar afgreiðslu til bæjarráðs.
-
Bæjarráð, fundur 586 liður 31
Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá fyrir þjónustu stuðningsfjölskyldna við fötluð börn vegna 2019 en fjárhæð miðast við upphæð meðlags.
Lagt er til að gjaldskrá miðist áfram við einfalt meðlag þannig að fyrir tvo sólarhringa verði greitt sem nemur einu meðlagi og þá verði greitt sem nemur helmingi eins meðlags fyrir hvern sólarhring. Félagsmálanefnd vísar afgreiðslu til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána óbreytta út árið 2019.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins samþykkir að vísa framlögðum gjaldskrám til fyrstu umræðu en áskilur sér rétt til þess að koma með breytingartillögur á fyrirliggjandi gjaldskrám milli umræðna um fjárhagsáætlun.