Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 117

23. október 2018, kl. 17:00 til 18:05, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 586 liður 51

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 117 frá 23.október 2018, lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

Dagskrá

  1. 1. Málefni flóttafólks 2018

    Mál 1801187 Allur ferill málsins

    Framlagt er minnisblað félagsmálastjóra ásamt drögum að samningi til umræðu og samþykktar í félagsmálanefnd. Félagsmálanefnd samþykkir drög að samningi og felur félagsmálastjóra að vinna málið áfram.

  2. 2. Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2019

    Mál 1810061 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá fyrir Breiðablik vegna 2019 og vísar afgreiðslu til bæjarráðs. Heilt yfir hækkar gjaldskráin um 2,9% vegna verðlagsbreytinga samkvæmt þjóðhagsspá.

  3. 3. Gjaldskrá félagslegrar heimþjónustu 2019

    Mál 1810065 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu vegna 2019 og vísar afgreiðslu til bæjarráðs. Heilt yfir hækkar gjaldskráin um 2,9% vegna verðlagsbreytinga samkvæmt þjóðhagsspá.

  4. 4. Gjaldskrá Fjölskyldusviðs 2019 vegna stuðningsfjölskyldna við fötluð börn

    Mál 1810085 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá fyrir þjónustu stuðningsfjölskyldna við fötluð börn vegna 2019 en fjárhæð miðast við upphæð meðlags. Félagsmálanefnd vísar afgreiðslu til bæjarráðs.

  5. 5. Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2019

    Mál 1810028 Allur ferill málsins

    Framlögð er styrkbeiðni samtaka um kvennaathvarf til umræðu og samþykktar í félagsmálanefnd. Frestað þar til endanleg fjárhagsáætlun liggur fyrir.

  6. 6. Styrkbeiðni vegna reksturs Aflsins 2019

    Mál 1810113 Allur ferill málsins

    Framlögð er styrkbeiðni Aflsins, samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldis til umræðu og samþykktar í félagsmálanefnd. Frestað þar til endanleg fjárhagsáætlun liggur fyrir.

  7. 7. Fjárhagsáætlun hjúkrunarheimila

    Mál 1810164 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir fjárhagsáætlanir fyrir Uppsali og Hulduhlíð fyrir árið 2019 fyrir sitt leyti og vísar áfram til bæjarráðs.