Talþjálfun barna í skólum Fjarðabyggðar
Mál 1809053 Fyrst á dagskrá 12. september 2018, síðast 14. nóvember 2018. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Fræðslunefnd, fundur 59 liður 8
Lagt var fram bréf frá starfsmönnum og stjórn foreldrafélags leikskólans Lyngholts þar sem lagt er til að sveitarfélagið feli fræðslustjóra að ræða við fyrirtækið Tröppu um talmeinaþjónustu. Um er að ræða þjónustu sem er á ábyrgð velferðarráðuneytisins og Sjúkratrygginga Íslands, en í gildi er samningur við sjálfstætt starfandi talmeinafræðing hér eystra um þjónustu við þau börn sem falla undir ábyrgðarsvið sveitarfélagsins. Fræðslunefnd tekur fram að þessi þjónusta er á ábyrgð velferðarráðuneytis og Sjúkratrygginga Íslands. Fræðslustjóra er falið að skoða málið nánar og málinu annars frestað til næsta fundar.
-
Fræðslunefnd, fundur 63 liður 3
Fyrir liggur svar fyrirtækisins Tröppu við fyrirspurn fræðslunefndar um umsýslu- og framkvæmdagjald. Um er að ræða gjald fyrir talmeinaþjónustu sem Trappa hefur annast fyrir SÍ, Sjúkratryggingar Íslands, í skólum Fjarðabyggðar. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að ganga til samninga við Tröppu, en jafnframt verði leitast við að fá Sjúkratryggingar Íslands til að annast að fullu greiðslu fyrir þjónustuna
-
Bæjarstjórn, fundur 257 liður 3.3
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 63“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.