Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Úthlutun úr Endurmennturnarsjóði grunnskóla 2018

Mál 1804068 Fyrst á dagskrá 18. apríl 2018, síðast 26. apríl 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Fræðslunefnd, fundur 54 liður 1

    Stjórn Námsleyfasjóðs, sem fer með málefni Endurmenntunarsjóðs grunnskóla, hefur lokið úthlutun árið 2018. Alls bárust umsóknir um styrki til 209 verkefna frá 77 umsækjendum upp á rúmar 101 milljón króna. Ákveðið var að veita styrki til 208 verkefna og nam heildarfjárhæð styrkloforða kr. 47.691.000.

    Áherslusvið sjóðsins að þessu sinni voru verkefni sem tengjast bekkjarbrag, lærdómssamfélaginu og foreldrasamvinnu. Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar fékk styrk í fjögur verkefni, námskeið í listsköpun, námskeið í kynfræðslu fyrir grunnskóla og tvö námskeið í Uppeldi til ábyrgðar, námskeið fyrir stýrihópa skólanna og Uppbygging I. Samtals styrkur upp á 702.000 kr. Einnig fékk Grunnskóli Eskifjarðar styrk sem og Grunnskóli Reyðarfjarðar og Skólaskrifstofa Austurlands, sjá nánar í fylgiskjali.

  2. Bæjarstjórn, fundur 243 liður 6.1

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 54“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is