Fræðslunefnd, fundur 54
18. apríl 2018, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, formaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Kjartan Glúmur Kjartansson, aðalmaður
- Guðlaug Dana Andrésdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, ritari
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 562 liður 29
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 54 frá 18.apríl 2018, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 243 liður 6
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 18. apríl sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Úthlutun úr Endurmennturnarsjóði grunnskóla 2018
Mál 1804068 Allur ferill málsins
Stjórn Námsleyfasjóðs, sem fer með málefni Endurmenntunarsjóðs grunnskóla, hefur lokið úthlutun árið 2018. Alls bárust umsóknir um styrki til 209 verkefna frá 77 umsækjendum upp á rúmar 101 milljón króna. Ákveðið var að veita styrki til 208 verkefna og nam heildarfjárhæð styrkloforða kr. 47.691.000.
Áherslusvið sjóðsins að þessu sinni voru verkefni sem tengjast bekkjarbrag, lærdómssamfélaginu og foreldrasamvinnu. Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar fékk styrk í fjögur verkefni, námskeið í listsköpun, námskeið í kynfræðslu fyrir grunnskóla og tvö námskeið í Uppeldi til ábyrgðar, námskeið fyrir stýrihópa skólanna og Uppbygging I. Samtals styrkur upp á 702.000 kr. Einnig fékk Grunnskóli Eskifjarðar styrk sem og Grunnskóli Reyðarfjarðar og Skólaskrifstofa Austurlands, sjá nánar í fylgiskjali.
-
2. Niðurstöður úr Skólavoginni
Mál 1311034 Allur ferill málsins
Í febrúar 2018 lagði Skólapúlsinn fyrir foreldrakönnun í grunnskólum Fjarðabyggðar og í mars í leikskólunum á Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði og Eskifirði. Niðurstöður hafa borist skólunum og unnið verður með niðurstöðurnar innan hvers skóla þar sem niðurstöður eru kynntar starfsmönnum, skólaráði/foreldraráði og foreldrum. Könnunin snertir marga þætti skólastarfs og nýtist sem hjálpartæki fyrir framþróun skólastarfs. Fræðslunefnd fór sameiginlega yfir helstu niðurstöður og óskar skólunum góðs gengis við úrvinnslu niðurstaðna.
-
3. Reglur um kynningar, auglýsingar og gjafir í skóla- og frístundastarfi í Fjarðabyggð
Mál 1804078 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd fór yfir drög að reglum um kynningar, auglýsingar og gjafir í skóla- og frístundastarfi í Fjarðabyggð. Umræðu frestað til næsta fundar.