Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Áskorun frá foreldrafélagi grunnskólans á Eskifirði

Mál 1802010 Á dagskrá 5. febrúar 2018. 1 færsla í fundargerðum hjá: Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: EskifjörðurSkólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  1. 2018

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 197 liður 4

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar innsent erindi frá foreldrafélagi grunnskólans á Eskifirði.

    Á árinu 2016 var þak íþróttahússins lagað fyrir u.þ.b. sex milljónir og á árinu 2017 var unnin úttekt á íþróttahúsinu á Eskifirði og var tekið mið af því sem þar kom fram við fjárhagsáætlun ársins 2018 áætlað er að framkvæma fyrir 15 milljónir á árinu 2018 í íþróttahúsinu. Gert er ráð fyrir því að endurnýja loftræsikerfi hússins, komast fyrir þann leka sem er á þaki hússins, mála salinn og búningsklefana í þeirri framkvæmd.