Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 197

5. febrúar 2018, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Ragnar Sigurðsson, varaformaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Þorsteinn Sigurjónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting vegna fiskeldis

    Mál 1712007 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf Skipulagsstofnunar, dagsett 12. janúar 2018, varðandi beiðni Fjarðabyggðar um staðfestingu á óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna stefnumörkunar sveitarfélagsins um fiskeldi. Skipulagsstofnun er ekki tilbúin til að staðfesta óverulega breytingu á aðalskipulagi.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur bæjarstjóra að fara yfir málið og ræða við Skipulagsstofnun.

  2. 2. 730 Austurvegur 9 - Byggingarleyfi

    Mál 1802005 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Björgvins Jónssonar, dagsett 2. febrúar 2018, þar sem sótt er um leyfi til að breyta tveimur gluggum á húsi hans að Austurvegi 9 á Reyðarfirði. Samþykki annarra eiganda hússins liggur fyrir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi.

  3. 3. Gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar sala 2018

    Mál 1709219 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga sviðstjóra veitusviðs um breytingar á gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar sala.

    Lagt er til að söluhluti Rafveitu Reyðarfjarðar hækki um 4%. Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti tillögu sviðstjóra veitusviðs og vísar tillögunni til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.

  4. 4. Áskorun frá foreldrafélagi grunnskólans á Eskifirði

    Mál 1802010 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar innsent erindi frá foreldrafélagi grunnskólans á Eskifirði.

    Á árinu 2016 var þak íþróttahússins lagað fyrir u.þ.b. sex milljónir og á árinu 2017 var unnin úttekt á íþróttahúsinu á Eskifirði og var tekið mið af því sem þar kom fram við fjárhagsáætlun ársins 2018 áætlað er að framkvæma fyrir 15 milljónir á árinu 2018 í íþróttahúsinu. Gert er ráð fyrir því að endurnýja loftræsikerfi hússins, komast fyrir þann leka sem er á þaki hússins, mála salinn og búningsklefana í þeirri framkvæmd.

  5. 5. Zveskjan

    Mál 1801063 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd ræddi erindið og felur sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að fara yfir ástand húsnæðis félagsmiðstöðvanna í Fjarðabyggð og leggja fyrir nefndina.

  6. 6. Norðfjarðarvöllur

    Mál 1801078 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir með íþrótta- og tómstundanefnd að rétt sé að skipta þarf um gervigras á Norðfjarðarvelli og að gera þurfi heildstæða áætlun um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Fjarðabyggð í samstarfi þessara nefnda.

  7. 7. Skólalóð - framkvæmdir

    Mál 1801103 Allur ferill málsins

    Framlagt sameiginlegt erindi skólaráðs og nemendaráðs Grunnskólans á Eskifirði til bæjarráðs um skólalóð. Bæjarráð þakkar bréfriturum bréfið og vísar því til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerði ráð fyrir lagfæringum við lóðir grunnskólanna á Eskifirði og Reyðarfirði árið 2018. Verið er að leita til hönnuða með verð í að hanna leiksvæðið á skólalóðinni við grunnskólana. farið verður svo í að framkvæma eftir þeirri hönnun þegar hún liggur fyrir.

  8. 8. Endurbætur á húsnæði Salthússmarkaðarins á Stöðvarfirði

    Mál 1708065 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Salthúsmarkaðarins á Stöðvarfirði sem fjallar um viðhaldsmál og endurbætur á aðkomu að inngangi og unhverfi hans.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra að skoða það sem beðið er um að lagað verði í umhverfi og aðkomu að saltmarkaðinum ásamt húsnæði hans.

  9. 9. Aukin framleiðsla á laxi í Reyðarfirði um 10.000 tonn - beiðni um umsögn á frummatsskýrslu

    Mál 1801087 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir drög að umsögn og bætti við athugasemdum í hana og vísar til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu

  10. 10. Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði

    Mál 1201079 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir drög að umsögn til Laxa ehf vegna tillögu að matsáætlun fyrir 4000 tonna laxeldi í Fáskrúðsfirði.

    Atvinnu- og þróunarstjóra falið að vinna áfram að umsögn ásamt öðrum embættismönnum sveitarfélagsins.

  11. 11. Drög að lagafrumvarpi um breytingu á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi - til umsagnar

    Mál 1802001 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir drögin að frumvarpinu og felur atvinnu- og þróunarstjóra ásamt öðrum embættismönnnum að gera við það umsögn og sækja um frest til að skila henni inn.