Tillaga frá Jyväskylä um samstarf í tengslum við vinabæjarsamskipti
Mál 1604134 Fyrst á dagskrá 2. maí 2016, síðast 29. september 2016. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarráð, fundur 472 liður 13
Tillaga að samstarfi í tengslum við vinabæjarsamskipti við Jyväskylä. Verkefnið snýst um hagnýta þjónustu við samfélög með stighækkandi lífaldur, það er til þriggja ára og er kallað "Smart Ageing Communities". Evrópusambandið fjármagnar 65% af kostnaði. Ísland er hluti af því svæði sem verkefnið nær yfir, Northern Periphery Action Programme (NPA). Ekki er gerð krafa um að allir þátttakendur séu með sama framlag til verkefnisins.
Lesa alla bókunina (72 orð til viðbótar)
Hugmyndin að verkefninu kemur upphaflega frá Írlandi og hafði Háskólinn í Ulster frumkvæði að því.
Aðrir sem taka þátt í verkefninu eru bærinn Limerick, háskólinn í Umeå og Skellefteå og Jyväskylä.
Áætlað er að verkefnið hefjist í upphafi árs 2017.
Unnið er að gerð umsóknar en umsóknarfrestur er til 1.september 2016. Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu og felur bæjarritara samskipti vegna kostnaðar og skipulags vinnu við verkefnið. Vísað til kynningar í félagsmálanefnd.
-
Bæjarstjórn, fundur 200 liður 4.13
Fundargerðin „Bæjarráð - 472“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 489 liður 9
Framlagt minnisblað deildarstjóra heimaþjónustu um evrópstyrkt verkefni, er varðar tækniþróun í öldrunarþjónustu á dreifbýlum svæðum á norðlægum slóðum. Bæjarráð samþykkir aðild að verkefninu með fyrirvara um hversu mikið vinnuframlag sveitarfélagið getur lagt til þess á næstu þremur árum.
-
Bæjarstjórn, fundur 207 liður 1.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 489“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.