Áskorun vegna niðurskurðar hjá sveitarfélögum
Mál 1602027 Fyrst á dagskrá 10. febrúar 2016, síðast 18. febrúar 2016. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Fræðslunefnd, fundur 25 liður 1
Borist hefur bréf, dagsett 4. febrúar 2016, frá Umboðsmanni barna þar sem hann minnir sveitarstjórnir á þá skyldu sína að setja hagsmuni barna i forgang. Bréfið kemur í kjölfar umræðu um fyrirhugaðan niðurskurð á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar en svipað bréf barst til sveitarstjórna í mars 2011 þar sem beðið var um að börnum verði hlíft við niðurskurði. Umboðsmaður biður sveitarstjórnir að ígrunda vel hvaða áhrif aðgerðir til hagræðingar hafi til langs tíma og skorar á sveitarfélög að virða Barnasáttmálann í störfum sínum og láta hagsmuni barna ganga framar hugsanlegum fjárhagslegum hagsmunum sveitarfélaga. Lagt fram til kynningar.
-
Bæjarráð, fundur 463 liður 8
Framlagt til kynningar bréf Umboðsmanns barna þar sem minnt er á skyldu sveitarfélaga að setja hagsmuni barna i forgang. Er vísað til barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna í því sambandi en tilefni athugasemdar er niðurskurður skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.
-
Bæjarstjórn, fundur 195 liður 3.8
Fundargerðin „Bæjarráð - 463“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 195 liður 6.1
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 25“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.