Fræðslunefnd, fundur 25
10. febrúar 2016, kl. 16:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, formaður
- Lísa Lotta Björnsdóttir, varaformaður
- Magni Þór Harðarson, aðalmaður
- Margrét Perla Kolka Leifsdóttir, varamaður
- Þóroddur Helgason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 463 liður 20
Fundargerð fræðslunefndar nr. 25 frá 10. febrúar 2016, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 195 liður 6
Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 25 frá 10.febrúar 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Áskorun vegna niðurskurðar hjá sveitarfélögum
Mál 1602027 Allur ferill málsins
Borist hefur bréf, dagsett 4. febrúar 2016, frá Umboðsmanni barna þar sem hann minnir sveitarstjórnir á þá skyldu sína að setja hagsmuni barna i forgang. Bréfið kemur í kjölfar umræðu um fyrirhugaðan niðurskurð á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar en svipað bréf barst til sveitarstjórna í mars 2011 þar sem beðið var um að börnum verði hlíft við niðurskurði. Umboðsmaður biður sveitarstjórnir að ígrunda vel hvaða áhrif aðgerðir til hagræðingar hafi til langs tíma og skorar á sveitarfélög að virða Barnasáttmálann í störfum sínum og láta hagsmuni barna ganga framar hugsanlegum fjárhagslegum hagsmunum sveitarfélaga. Lagt fram til kynningar.
-
2. Stjórnarfundir Skólaskrifstofu Austurlands 2015 og 2016
Mál 1601140 Allur ferill málsins
Fyrir liggja þrjár fundargerðir framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu Austurlands frá 22.desember, 30.desember og 12.janúar sl. lagðar fram til kynningar.
-
3. Fjölskyldustefna Fjarðabyggðar
Mál 1411001 Allur ferill málsins
Lögð voru fram lokadrög að fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar sem unnin voru af fjölskipuðum starfshópi sem Hrönn Pétursdóttir verkefnastjóri leiddi. Fræðslunefnd hafði drög að fjölskyldustefnu til umfjöllunar á fundi sínum 9. september 2015 þar sem nefndin gerði nokkrar athugasemdir. Fræðslunefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi drög og fagnar framkomnum áherslum.
-
4. Kynning skólastjórnenda
Mál 1511071 Allur ferill málsins
Starfandi skólastjóri leikskólans Sólvalla kynnti starf skólans og ræddi við nefndina um starfsemi skólans og þær miklu breytingar sem í vændum eru með tilkomu nýja leikskólahúsnæðisins í ágúst 2016. Fræðslunefnd þakkar skólastjóra fyrir greinargóða kynningu.