Hugmynd að skipulagi við ytri Þverá Eskifirði
Mál 1408056 Fyrst á dagskrá 25. ágúst 2014, síðast 4. september 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: EskifjörðurSkipulag
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 99 liður 9
Lagt fram bréf með hugmyndum Kristins Þórs Jónassonar að framtíðar tjald-, afþreyingar- og útivistarsvæði inn í Dal á Eskifirði dagsett 22. júlí 2014. Svæðið sem um ræðir er utan við Ytri Þverá.
Nefndin þakkar bréfritara sýndan áhuga á umhverfismálum Eskifjarðar en bendir á að umrætt svæði er skilgreint sem landbúnarðarsvæði samkvæmt Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 og er innan grannsvæðis vatnsveitu Fjarðabyggðar á Eskifirði þar sem nýbyggingar eru ekki leyfðar. Nefndin tekur undir með bréfritara að núverandi tjaldsvæði sé of lítið og huga þurfi að úrbótum.
-
Bæjarstjórn, fundur 161 liður 2.9
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 99“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.