750 - Fyrirhuguð lagnaleið vatnsveitu / göngustígur
Mál 1205066 Á dagskrá 4. október 2012. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: SamgöngurUmhverfi og veitur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2012
Bæjarstjórn, fundur 120 liður 6
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði. Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi frá mannvirkjastjóra Fjarðabyggðar, fyrir hönd Vatnsveitu Fjarðabyggðar og RARIK dags. 7. september 2012, ásamt teikningum frá Mannvit dags. 8. ágúst 2012, útboðs- og verklýsingu ásamt tilboðsskrá dags. í ágúst 2012 og tímaskema dags. 6. september 2012, vegna fyrirhugaðrar lagnaleiðar vatnsveitu og göngustígs ofan byggðarinnar á Fáskrúðsfirði.Enginn tók til máls. Bjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum veitingu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmdarinnar.