Bæjarstjórn, fundur 120
4. október 2012, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. Bæjarráð - 309
Enginn tók til máls. Fundargerð bæjarráðs nr. 309 frá 18. september samþykkt með 9 atkvæðum.
-
2. Bæjarráð - 310
Til máls tók Valdimar O. Hermannsson. Fundargerð bæjarráðs nr. 310 frá 24. september samþykkt með 9 atkvæðum.
- 2.1 Fjármögnun og lánasamningar1205065
- 2.2 Fundur í september 2012 vegna öldrunarmála með fulltrúum Heilbrigðiseftirlits Austurlands1209153
- 2.3 Beiðni um styrk til þátttöku í Landsmóti æskulýðsfélaga Þjóðkirkjunnar1209118
- 2.4 Aðalfundur HAUST 2012 24.10. á Seyðisfirði1209107
- 2.5 Ágóðahlutagreiðsla 2012 - Brunabót1209114
- 2.6 Bréf Heilbrigðiseftirlits Austurlands er varðar umsóknir um starfsleyfi fyrir laxeldi allt að 200 tonnum1207083
- 2.7 Samgöngunefnd SSA - Fundargerðir 2011-20121112080
- 2.8 Sjálfboðaliðar í verkefni 20131209133
- 2.9 Gjaldskrá 2013 vegna nemenda í grunnskólum utan lögheimilissveitarfélags1209134
- 2.10 Dekk á athafnasvæði Hringrásar1209137
- 2.11 Aðalfundur Eignarhaldsfélagsins Fasteignar - boðun - 28.09.2012 kl. 12.001209151
- 2.12 Þjóðaratkvæðagreiðsla 20. október 2012 - tillögur stjórnlagaráðs1209011
- 2.13 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 461209007F
-
3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 46
Enginn tók til máls. Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 46 frá 17. september samþykkt með 9 atkvæðum.
- 3.1 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013-Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
- 3.2 735 - Deiliskipulag í botni Eskifjarðar
- 3.3 740 - Deiliskipulagið Naust 1
- 3.4 750 - Fyrirhuguð lagnaleið vatnsveitu / göngustígur
- 3.5 735 Hátún 3 - stoðveggur
- 3.6 735 Strandgata 26 - Breyting á notkun
- 3.7 Umsókn um leyfi til að beita hrossum í landi Hvalnes Stöðvarfirði
- 3.8 Tjálundur utan Svínaskálahlíðar á Eskifirði
- 3.9 Graffitibærinn Neskaupstaður
- 3.10 Drög að heildstæðu frumvarpi til náttúruverndarlaga
- 3.11 Fundagerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands árið 2012
- 3.12 Heynytjar á jörðinni Hólmum í Reyðarfirði
- 3.13 Hunda- og kattahreinsun í Fjarðabyggð 2012
- 3.14 Lýsing göngustíg neðan Drangagils og Tröllagils
- 3.15 Snjóflóðavarnir á Drangagilssvæði í Neskaupstað
- 3.16 Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði
- 3.17 Beiðni um bætta félagsþjónstu á Stöðvarfirði
- 3.18 Vatnsveita Fjarðabyggðar Fáskrúðsfirði
- 3.19 Landbúnaðarnefnd - 6
-
4. 740 - Deiliskipulagið Naust 1
Mál 1208106 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði. Við undirbúning deiliskipulagsins Naust 1 kom í ljós að breyta þarf Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna stækkunar fiskihafnarinnar á Norðfirði. Skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi liggur fyrir en þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar áður en hægt er að senda hana til Skipulagsstofnunar til umsagnar. Enginn tók til máls. Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að láta breyta Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027; þéttbýlisuppdráttur fyrir Norðfjörð.Bæjarstjórn samþykkir einnig með 9 atkvæðum framlagða skipulagslýsingu.
-
5. 735 - Deiliskipulag Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði
Mál 1208085 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði. Lögð fram skipulags- og matslýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangnamuna í Eskifirði. Enginn tók til máls. Bæjarstjórn samþykkir framlagða skipulags- og matslýsingu með 9 atkvæðum.
-
6. 750 - Fyrirhuguð lagnaleið vatnsveitu / göngustígur
Mál 1205066 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði. Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi frá mannvirkjastjóra Fjarðabyggðar, fyrir hönd Vatnsveitu Fjarðabyggðar og RARIK dags. 7. september 2012, ásamt teikningum frá Mannvit dags. 8. ágúst 2012, útboðs- og verklýsingu ásamt tilboðsskrá dags. í ágúst 2012 og tímaskema dags. 6. september 2012, vegna fyrirhugaðrar lagnaleiðar vatnsveitu og göngustígs ofan byggðarinnar á Fáskrúðsfirði.Enginn tók til máls. Bjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum veitingu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmdarinnar.