Norðfjarðarrétt - viðgerð
Mál 1109005 Fyrst á dagskrá 1. september 2011, síðast 23. júlí 2012. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Landbúnaðarnefnd.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2011
Landbúnaðarnefnd, fundur 4 liður 2
Landbúnaðarnefnd leggur áherslu á að farið verði í viðgerðir á Norðfjarðarrétt við fyrsta tækifæri, en ljóst er að réttin þolir ekki við án viðhalds lengur. En réttinn hefur ótvírætt mikið sögu- og menningarlegt gildi sem bera að varðveita.
-
2012
Bæjarráð, fundur 301 liður 9
Vísað er til bókunar landbúnaðarnefndar frá fundi 1.september 2011 en þar lagði nefndin áherslu á að farið verði í viðgerð á Norðfjarðarrétt við fyrsta tækifæri en ljóst er að réttin þolir ekki að vera án viðhalds lengur. Réttin hefur töluvert sögu- og menningarlegt gildi sem ber að varðveita. Málinu var vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar vegna vinnu við fjárhagsáætlun ársins en ekki var gert ráð fyrir framlögum til réttarinnar við lokafrágang fjárhagsáætlunar 2012. Samvinnufélag útgerðarmanna Neskaupstað lagði nýlega fram 2 milljónir kr. til lagfæringa á réttinni gegn því að sveitarfélagið legði 1 milljón til verksins. Lagt er til að bæjarráð samþykki að skoðað verði hvort hægt sé að gera við réttina með 3 milljóna framlagi SÚN og sveitarfélagsins. Sé það mat mannvirkjastjóra að viðgerð sé framkvæmanleg fyrir þá fjárhæð er lagt til að heimild verði veitt fyrir kostnaði allt að 1 milljón úr málaflokki 13 atvinnumálum.Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra.