Bæjarráð, fundur 301
23. júlí 2012, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 118 liður 9
Fundargerðir bæjarráðs á sumarleyfistíma bæjarstjórnar lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu.
Dagskrá
-
1. Ákvörðun Orkustofnunar um leyfða arðsemi flutningsfyrirtækis og dreifiveitna raforku vegna tímabilsins 2011 - 2015
Mál 1207074 Allur ferill málsins
Kynnt drög að ákvörðun Orkustofnunar vegna leyfðrar arðsemi sérleyfisfyrirtækja á raforkumarkaði. Vísað til mannvirkjastjóra til úrvinnslu.
-
2. Fasteignamat 2013
Mál 1207045 Allur ferill málsins
Fasteignamat á Austurlandi hækkar að meðaltali um 5,5% en hækkunin í Fjarðabyggð er 4,5%
-
3. Fjárhagsáætlun 2012 - Viðauki nr. 4
Mál 1207061 Allur ferill málsins
Minnisblað fjármálastjóra frá 11.júlí vegna viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2012 Um er að ræða hliðrun á fjárfestingu veitunnar í 3ja ára áætlun til ársins 2012 að upphæð 88 milljónir kr. en sparnaður er um 30 miljónir kr. með samnýtingu á skurði. Framkvæmdin verður fjármögnuð af handbæru fé aðalsjóðs og breytir þannig innri viðskiptastöðu vatnsveitu gagnvart aðalsjóði. Í upphaflegri fjárhagsáætlun 2012 er gert ráð fyrir að viðskiptastaða vatnsveitu gagnvart aðalsjóði sé jákvæð um 88,7 m.kr. í árslok en verði nálægt núlli miðað við ofangreinda framkvæmd. Þar sem um hliðrun í framkvæmdatíma er að ræða og einn áfanga í heildarframkvæmd við endurnýjun vatnsveitu á Fáskrúðsfirði hefur þessi samningur ekki áhrif á niðurstöðu efnahagsliða 2015 í 3ja ára áætlun.Bæjarráð samþykkir viðaukann.
-
4. Framkvæmdir á skíðasvæðinu í Oddsskarði
Mál 1206036 Allur ferill málsins
Minnisblað mannvirkjastjóra frá 10.júlí.Bæjarráð samþykkir tillöguna og samþykkir framkvæmd. Fjármögnun vísað til afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2013.
-
5. Nýsköpun í opinberum rekstri
Mál 1207056 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem boðað er til nýsköpunarráðstefnu 30. október nk. í Reykjavík.
-
6. Bréf Heilbrigðiseftirlits Austurlands er varðar umsóknir um starfsleyfi fyrir laxeldi allt að 200 tonnum
Mál 1207083 Allur ferill málsins
Bréf HAUST lagt fram til kynningar og umfjöllunar en þar er óskað umsagnar um 200 tonna leyfisumsóknir í Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði.Bæjarráð felur bæjarstjóra í samstarfi við framkvæmdasvið að óska eftir fresti til að veita umsögn og vinna að málinu.
-
7. Ársreikningur 2011 - Veturhús
Mál 1207062 Allur ferill málsins
Ársreikningur Veturhúsa vegna 2011 lagður fram til kynningar
-
8. Allsherjarþing Evrópusamtaka sveitarfélaga, CEMR, verður haldið í september á Spáni
Mál 1207044 Allur ferill málsins
Allsherjarþing CEMR verður haldið í Cadiz á suður Spáni 26.- 28.september.
-
9. Norðfjarðarrétt - viðgerð
Mál 1109005 Allur ferill málsins
Vísað er til bókunar landbúnaðarnefndar frá fundi 1.september 2011 en þar lagði nefndin áherslu á að farið verði í viðgerð á Norðfjarðarrétt við fyrsta tækifæri en ljóst er að réttin þolir ekki að vera án viðhalds lengur. Réttin hefur töluvert sögu- og menningarlegt gildi sem ber að varðveita. Málinu var vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar vegna vinnu við fjárhagsáætlun ársins en ekki var gert ráð fyrir framlögum til réttarinnar við lokafrágang fjárhagsáætlunar 2012. Samvinnufélag útgerðarmanna Neskaupstað lagði nýlega fram 2 milljónir kr. til lagfæringa á réttinni gegn því að sveitarfélagið legði 1 milljón til verksins. Lagt er til að bæjarráð samþykki að skoðað verði hvort hægt sé að gera við réttina með 3 milljóna framlagi SÚN og sveitarfélagsins. Sé það mat mannvirkjastjóra að viðgerð sé framkvæmanleg fyrir þá fjárhæð er lagt til að heimild verði veitt fyrir kostnaði allt að 1 milljón úr málaflokki 13 atvinnumálum.Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra.
-
10. Hafnarstjórn - 101
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 101 frá 10.júlí lögð fram til samþykktar í umboði bæjarstjórnar í sumarleyfi hennar.
-
11. Heimsókn til Graveline 2012
Mál 1207084 Allur ferill málsins
Heimsókn til Graveline 28. - 29. september 2012.Bæjarráð samþykkir að fulltrúar Fjarðabyggðar til Graveline verða Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar, Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri auk Birkis Snæs Guðjónssonar fulltrúa íbúa.
-
12. Umsókn um undirbúning og framkvæmd landsmóts UMFÍ 50
Mál 1107099 Allur ferill málsins
Bæjarráði gerð grein fyrir að að sótt hafi verið um að halda landsmót 50 ára og eldri fyrir árið 2013 í Neskaupstað.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />