Málefni golfklúbbana í Fjarðabyggð
Mál 1103114 Á dagskrá 22. mars 2011. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarráð.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2011
Bæjarráð, fundur 238 liður 1
Fulltrúar Golfklúbbana á Eskifirði og Norðfirði sátu þennan lið fundarins. Frá 9:00 - 9:30 frá Golfklúbbi Norðfjarðar þeir Gunnar Ásgeir Karlsson, Óskar Sverrisson og Jón Grétar Guðgeirsson. Fyrir utan hús félagsins er aðstaða á svæði klúbbsins ekki fullkláruð. Leigusamningur við Skorrastaðabændur um land klúbbsins rennur út 2014. 85 meðlimir eru í klúbbnum, unglingastarf hefur ekki verið mikið síðustu misseri en unnið er að því að fjölga börnum og ungmennum, m.a. með kynningum í grunnskólanum. Lagður fram rekstrarreikningur fram til 31.12.2010. Lagt var fram bréf Golfklúbbs Norðfjarðar frá 9.mars þar sem óskað er eftir styrk vegna skemmda sem urðu á golfvellinum á annan dag jóla vegna klakastíflu sem brast og fór yfir völlinn. Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um fjárframlag en vísar erindi til mannvirkjastjóra með ósk um að mannvirkjasvið verði klúbbnum innan handar með hreinsun sé þess kostur. Frá 9.30 - 10:00 frá Golfklúbbnum Byggðaholti þeir Jóhann Arnarson og Sigurjón Geir Sveinsson. Framundan er vinna við að tengja nýju flatirnar við völlinn og hús klúbbsins þarfnast töluverðs viðhalds á næstu misserum. Meðlimir klúbbsins eru 62 auk 15 barna og unglinga. Samkvæmt fjárhagsáætlun 2011 verður klúbburinn rekinn á pari en það er háð því að allir styrkir innheimtist. Rætt um stöðu Golfklúbbs Eskifjarðar og Golfklúbbsins Grímu. Einnig var rætt við fulltrúa beggja klúbba um vallarmál, tækjamál og samstarf klúbbanna en klúbbarnir hafa m.a. rætt um sameiginleg kaup á sérhæfðum tækjum.