Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2009

Fjárhagsáætlun 2010 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir, síðari umræða

Mál 0912069 Fyrst á dagskrá 21. desember 2009, síðast 29. desember 2009. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2009

    Bæjarstjórn, fundur 64 liður 27

    Fjárhagsáætlun 2010 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir, fyrri umræða

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  2. Bæjarstjórn, fundur 65 liður 1

    Til máls tóku:  Helga Jónsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Smári Geirsson, Guðmundur Þorgrímsson.  Lögð er fram tillaga um að útsvarshlutfall ársins 2010 verði 13,28% og samþykkir bæjarstjórn tillöguna með 6 atkvæðum fulltrúa meirihluta en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá, Valdimar O Hermannsson, Jóhanna Hallgrímsdóttir, Þórður Vilberg Guðmundsson. Bókun Sjálfstæðismanna vegna síðari umræðu og afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2010.Við undirritaðir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, viljum vekja sérstaka athygli á þeirri stöðu sem fram kemur í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2010, þar sem tekjur sveitarfélagsins eru að dragast saman en rekstrargjöld eru að aukast, eigið fé verður neikvætt og skuldabyrgði verður íþyngjandi á komandi árum.  Munum við sitja hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2010.Það er morgunljóst að halda verður vel utan um allan rekstur og fjárhagslega stjórnun sveitarfélagsins á næstu árum, og munum við Sjálfstæðismenn ekki skorast undan að taka þátt í þeirri erfiðu vinnu sem óhjákvæmilega er framundan hjá Fjarðabyggð.Valdimar O Hermannsson, Jóhanna Hallgrímsdóttir, Þórður V. Guðmundsson (sign) Niðurstöður fjárhagsáætlunar 2010Tölur í þús. kr.Rekstrar-niðurstaðaFjárfestingAfborganir lánaSala eignaLangtíma-lántakaSamst.A-hluta-75.386132.500363.01320.000290.300Samst.B-hluta78.546157.800197.66531.0000Samst.AogB hluta3.160290.300560.67851.000290.300Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun 2010 með 6 atkvæðum fulltrúa meirihluta en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá, Valdimar O Hermannsson, Jóhanna Hallgrímsdóttir, Þórður Vilberg Guðmundsson.