Bæjarstjórn, fundur 65
29. desember 2009, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun 2010 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir, síðari umræða
Mál 0912069 Allur ferill málsins
Til máls tóku: Helga Jónsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Smári Geirsson, Guðmundur Þorgrímsson. Lögð er fram tillaga um að útsvarshlutfall ársins 2010 verði 13,28% og samþykkir bæjarstjórn tillöguna með 6 atkvæðum fulltrúa meirihluta en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá, Valdimar O Hermannsson, Jóhanna Hallgrímsdóttir, Þórður Vilberg Guðmundsson. Bókun Sjálfstæðismanna vegna síðari umræðu og afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2010.Við undirritaðir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, viljum vekja sérstaka athygli á þeirri stöðu sem fram kemur í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2010, þar sem tekjur sveitarfélagsins eru að dragast saman en rekstrargjöld eru að aukast, eigið fé verður neikvætt og skuldabyrgði verður íþyngjandi á komandi árum. Munum við sitja hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2010.Það er morgunljóst að halda verður vel utan um allan rekstur og fjárhagslega stjórnun sveitarfélagsins á næstu árum, og munum við Sjálfstæðismenn ekki skorast undan að taka þátt í þeirri erfiðu vinnu sem óhjákvæmilega er framundan hjá Fjarðabyggð.Valdimar O Hermannsson, Jóhanna Hallgrímsdóttir, Þórður V. Guðmundsson (sign) Niðurstöður fjárhagsáætlunar 2010Tölur í þús. kr.Rekstrar-niðurstaðaFjárfestingAfborganir lánaSala eignaLangtíma-lántakaSamst.A-hluta-75.386132.500363.01320.000290.300Samst.B-hluta78.546157.800197.66531.0000Samst.AogB hluta3.160290.300560.67851.000290.300Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun 2010 með 6 atkvæðum fulltrúa meirihluta en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá, Valdimar O Hermannsson, Jóhanna Hallgrímsdóttir, Þórður Vilberg Guðmundsson.
-
2. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs - síðari umræða
Mál 0911082 Allur ferill málsins
Enginn tók til máls.Samþykktin er samþykkt með 9 atkvæðum.
-
3. Bæjarráð - 178
Til máls tóku: Helga Jónsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Smári Geirsson, Þorbergur Hauksson, Guðmundur Þorgrímsson.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.