Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUngmennaráð

Ungmennaráð, fundur 19

5. mars 2025, kl. 16:30 til 17:45, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Magnús Árni Gunnarsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Máni Franz Jóhannsson, formaður
  • Eyvör Rán Ívarsdóttir, aðalmaður
  • Adam Peta, aðalmaður
  • Margeir Ríkarðsson, aðalmaður
  • Vöttur Þeyr Ívarsson, aðalmaður
  • Bergþóra Líf Heiðdísardóttir, aðalmaður
  • Sölvi Hafþórsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Magnús Árni Gunnarsson, embættismaður
  • Karitas Harpa Davíðsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Fjölskyldunefnd, fundur 30 liður 6

    Fundargerð ungmennaráðs Fjarðabyggðar lögð fyrir Fjölskyldunefnd

  • Bæjarráð, fundur 890 liður 13

    Fundargerð 19. fundar ungmennaráðs lögð fram til staðfestingar

  • Bæjarstjórn, fundur 395 liður 9

    Fundargerð 19. fundar ungmennaráðs tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð 19. fundar ungmennaráðs frá 5. mars er staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Skólabreytingar

    Mál 2501074 Allur ferill málsins

    Frestað til 3 apríl.

  2. 2. Ungmennaráð - fjöldi og staðsetning ruslatunna í gönguleiðum og við ljósastaura

    Mál 2503014 Allur ferill málsins

    Ungmennaráð hvetur Skipulags- og framkvæmdanefnd til að endurskoða fjölda og staðsetningu ruslatunna í sveitarfélaginu, með sérstakri áherslu á göngustíga, almenningssvæði og vinsælar útivistarleiðir.

  3. 3. Ungmennaráð - Framtíð íþrótta í Fjarðabyggð

    Mál 2503013 Allur ferill málsins

    Ungmennaráð Fjarðabyggðar ályktar að aukið samstarf eða formleg sameining íþróttafélaga gæti leitt til skilvirkara og hagkvæmara íþróttastarfs, þar sem fjármagn, aðstaða og mannauður, bæði þjálfarar og sjálfboðaliðar, nýtast betur. Ráðið telur að þannig verði starfsemi félaganna eftirsóknarverðara fyrir iðkendur, foreldra, sjálfboðaliða og samfélagið í heild. Um leið er mikilvægt að deildir geti varðveitt menningu og hefðir hvers byggðarlags. Jafnframt ítrekar ráðið að raddir ungs fólks heyrist í þessari stefnumótun, enda eru ungmenni stór hluti iðkenda.

  4. 4. Sameiginlegar föstudagsopnanir í félagsmiðstöðvum Fjarðabyggðar

    Mál 2411175 Allur ferill málsins

    Ungmennaráð vill koma að skipulagi sameiginlegum föstudagsopnana með starfsfólki félagsmiðstöðva.