Ungmennaráð, fundur 16
4. desember 2024, kl. 16:30 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Hólmfríður M. Benediktsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)
Fundinn sátu
- Máni Franz Jóhannsson, formaður
- Eyvör Rán Ívarsdóttir, aðalmaður
- Adam Peta, aðalmaður
- Margeir Ríkarðsson, aðalmaður
- Vöttur Þeyr Ívarsson, aðalmaður
- Bergþóra Líf Heiðdísardóttir, aðalmaður
- Sölvi Hafþórsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Hólmfríður M. Benediktsdóttir, embættismaður
- Magnús Árni Gunnarsson, embættismaður
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Fjölskyldunefnd, fundur 30 liður 7
Fundargerð ungmennaráðs Fjarðabyggðar lögð fyrir Fjölskyldunefnd
Dagskrá
-
1. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
Mál 2206071 Allur ferill málsins
Tillögur frá ungmennaráði:
Leiktæki eru ekki nauðsynleg, en ef þau verða þá væri hægt að hafa þau í herþjálfunar stíl. Ráðlegt væri ða hafa rólur og rennibrautir. Væri hægt að kanna hvort þetta mætti vera lokaverkefni hjá VA að búa til leiktæki?
En að öðru leyti lýst ungmennaráði vel á að verið sé að byggja þetta upp.
-
2. Sameiginlegar föstudagsopnanir í félagsmiðstöðvum Fjarðabyggðar
Mál 2411175 Allur ferill málsins
Ungmennaráð vísar til fjölskyldunefndar fyrir frekari athugun.
-
3. Punktar frá ungmennaráði vegna færslu félagsmiðstöðva í skólahúsnæði
Mál 2411177 Allur ferill málsins
Ungmennaráð þykir óráðlagt að færa félagsmiðstöðvar í skólahúsnæði nema það sé nauðsyn. Ef áætlun er til staðar að færa félagsmiðstöð yfir í skólahúsnæði að ungmennaráð fái að gera skoðanakönnun meðal nemenda áður en sú ákvörðun er tekin.