Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 80

12. febrúar 2020, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
  • Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Ásta Ásgeirsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 286 liður 6

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 12. febrúar sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfsáætlanir og skólanámskrár skólaárið 2019-2020

    Mál 1912168 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja starfsáætlanir og skólanámskrár Tónskóla Neskaupstaðar, Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar, Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar og Eskifjarðarskóla fyrir skólaárið 2019-2020. Skólastjórar skólanna kynntu áætlanirnar og svöruðu spurningum nefndarfólks. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi starfsáætlanir og skólanámskrár og þakkar skólastjórum fyrir greinargóð svör.

  2. 2. Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar

    Mál 1908022 Allur ferill málsins

    Málefni sundlaugarinnar voru tekin til umræðu í bæjarráði 10. febrúar og bæjarráð fól bæjarstjóra að taka saman minnisblað um málið og hvaða leið væri best að fara í málinu. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs, fræðslustjóri og skólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar gerðu grein fyrir möguleikum sem væru fyrir hendi. Fræðslunefnd leggur áherslu á að gagnaöflun verði lokið sem fyrst þannig að hægt verði að taka ákvörðun í málinu og tryggja sundkennslu nemenda í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Fulltrúi Miðflokksins leggur fram eftirfarandi bókun: Skorað er á bæjarstjórn Fjarðabyggðar að samþykkja viðgerðir á Sundlaug Reyðarfjarðar nú þegar, tryggja áframhaldandi starfsemi hennar og um leið uppfylla lagaskyldur um skólasundkennslu við Grunnskóla Reyðarfjarðar. Sjá meðfylgjandi greinargerð.