Fræðslunefnd, fundur 74
2. október 2019, kl. 16:30 til 17:23, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Ásta Ásgeirsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 276 liður 9
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 74 frá 2.október 2019, samþykkt með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Hvatning til sveitarstjórna í tengslum við Skólaþing sveitarfélaga 2019
Mál 1909106 Allur ferill málsins
Borist hefur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem hvatt er til mætingar á Skólaþing sveitarfélaga 2019 sem haldið verður í Reykjavík mánudaginn 4. nóvember. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er: Á réttu róli? Á skólaþinginu verður lögð áhersla á að skoða skipan skólakerfisins út frá ólíkum sjónarhornum og hvernig hún þjónar nemendum og áskorunum um menntun til
framtíðar. Leitað verður til stjórnmálamanna, fræðimanna og skólafólks en síðast en ekki síst ungs fólks. Sambandið hefur, í samráði við Félag íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa sveitarfélaga, sent ungmennaráðum fjórar spurningar til umfjöllunar og óskað eftir því að þau taki þær til umfjöllunar og sendi sambandinu til baka niðurstöður sínar skriflega eða myndrænt. Ungmennaráð Fjarðabyggðar tekur þær fyrir á næsta fundi ráðsins. Fræðslunefnd samþykkir að senda þrjá fulltrúa á þingið, einn fulltrúa fræðslunefndar, fræðslustjóra og fulltrúa ungmennaráðs.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2020
Mál 1904133 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri fór yfir vinnu við fjárhagáætlun 2020. Fræðslunefnd fjallaði um áherslur í starfsáætlun fyrir árið 2020 sem tekur mið af nýsamþykktri fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar og samþykktri fjölskyldustefnu. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.
-
3. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
Mál 1808078 Allur ferill málsins
Kynnt voru lokadrög að myndskreyttum bæklingi um fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar. Fræðslunefnd hrósar starfshópi og hönnuðum fyrir vel unnin störf.