Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 73

18. september 2019, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
  • Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Ásta Ásgeirsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 275 liður 8

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 73 frá 18.september 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2020

    Mál 1904133 Allur ferill málsins

    Lagður fram rammi að fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 04 Fræðslumál á árinu 2020 sem bæjarráð hefur úthlutað nefndinni sbr. meðfylgjandi bréf. Fjármálastjóri mætti á fund nefndarinnar og fylgdi bréfinu eftir. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að vinna fjárhagsáætlun með skólastjórnendum miðað við samþykkt úthlutunarlíkön.

  2. 2. Verklagsreglur skóladagatala

    Mál 1908109 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd fór yfir drög að verklagsreglum skóladagatala í leik-, grunn- og tónlistarskólum. Umræðu frestað til næsta fundar.

  3. 3. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð

    Mál 1808078 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd ræddi hvernig best verði staðið að kynningu á nýsamþykktri fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar og áherslum í fræðslu- og frístundamálum til næstu þriggja ára. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.