Félagsmálanefnd, fundur 166
5. júní 2023, kl. 16:15 til 18:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Inga Rún Beck Sigfúsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Barbara Izabela Kubielas, aðalmaður
- Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
- Ásmundur Páll Hjaltason, varamaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Inga Rún Beck Sigfúsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 803 liður 11
Fundargerð 166. fundar félagsmálanefndar frá 5. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðlsu
Bæjarstjórn, fundur 356 liður 4
Fundargerð 166. fundar félgasmálanefndar frá 5. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Engin tók til máls.
Fundargerð 166. fundar félagsmálanefndar er samþykkt með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2024
Mál 2305070 Allur ferill málsins
Sviðstjóri Fjölskyldusviðs fer yfir Starfs-og fjárhagsáætlun 2024. Vísað til áframhaldandi vinnu í félagsmálanefnd.
-
2. Viðauki í barnavernd.
Mál 2211109 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni um viðauka vegna barns með fjölþættan vanda. Félagsmálanefnd samþykkir að vísa beiðninni til bæjarráðs.
-
3. Jafnréttisstefna 2023-2026
Mál 2305145 Allur ferill málsins
Lagðar fram tillögur að breytingum á jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar 2023-2026.
-
4. Umdæmiráð barnaverndar-landsbyggðin
Mál 2305238 Allur ferill málsins
Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar kynnir mál sem lagt hefur verið fyrir Umdæmisráð barnaverndar.
-
5. Samskiptastefna 2022-2026
Mál 2210143 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar fagnefnda drögum að samskipta- og vefstefnu Fjarðabyggðar ásamt stefnu um innri samskipti.
Félagsmálanefnd áréttar mikilvægi þess að einstaka stofnanir innan sveitarfélagsins hafi ákveðið sjálfstæði til að miðla upplýsingum hér eftir sem hingað til.