Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 242

16. september 2019, kl. 16:00 til 17:50, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 275 liður 4

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 241 og nr. 242 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Dýrunn Pála Skaftadóttir og Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 242 frá 16.september 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar í A hluta 2020

    Mál 1904130 Allur ferill málsins

    Lagður fram rammi að fjárhagsáætlun fyrir málaflokka eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar í A hluta á árinu 2020 sem bæjarráð hefur úthlutað. Sviðsstjórum falið að vinna áætlun áfram og leggja fyrir næsta fund.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar fyrir B hluta stofnanir

    Mál 1904131 Allur ferill málsins

    Lagður fram rammi að fjárhagsáætlun fyrir málaflokka eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar í B hluta á árinu 2020 sem bæjarráð hefur úthlutað.

    Sviðsstjórum falið að vinna áætlun áfram og leggja fyrir næsta fund.

  3. 3. 740 Viðgjörður - Framkvæmdaleyfi, efnistaka vegna vegagerðar

    Mál 1909028 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Vegagerðarinnar um efnistöku úr Viðfjarðará dagsett 5. september 2019. Gert er ráð fyrir að taka um 350 m3 af möl á um 700 m2 svæði úr ánni án þess að fara í rennandi vatn. Nota á efnið til að laga yfirborð Viðfjarðarvegar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir efnistökuna.

  4. 4. 730 Neðri Launá - Umsókn um efnistöku

    Mál 1909085 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Vegagerðarinnar um efnistöku úr Neðri Launá á Fagradal dagsett 16. september 2019. Gert er ráð fyrir að taka um 1.100 m3 af möl úr áreyrum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir efnistökuna og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  5. 5. 740 Miðstræti 1 - Umsókn um breytta notkun

    Mál 1909066 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Guðbjarts Hjálmarssonar, dagsett 12. september 2019, þar sem óskað er eftir að skráðri notkun húss hans að Miðstræti 1 á Norðfirði verði breytt úr náttúrugripasafni í íbúðarhús.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir breytta notkun hússins.

  6. 6. Opin leiksvæði í Fjarðabyggð

    Mál 1810205 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar tillaga um opin leiksvæði í Fjarðabyggð.

  7. 7. Vatnsréttindi í landi Gilsá Breiðdal

    Mál 1902143 Allur ferill málsins

    Lagt fram ódagsett bréf Fulltingis fh. Jóns Inga Young varðandi vatnsréttindi við Gilsá í Breiðdal og endurskoðun samnings um nýtingu vatnsveitu.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstóra framkvæmdasviðs og fjármálastjóra að vinna áfram að málinu.

  8. 8. Umsókn fyrir hjólabrettaaðstöðu Gamla Vélsmiðjan

    Mál 1909012 Allur ferill málsins

    Lagt fram ódagsett bréf Hjálmars Wais Joensen þar sem óskað er eftir afnotum að gömlu vélsmiðjunni við Eyrargötu undir hjólabrettapalla og box sem verið hafa utan við Egilsbúð á Norðfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur ástand hússins ekki vera þannig að hægt sé að vera með starfsemi í því að svo stöddu og hafnar þvi erindinu.

  9. 9. Leiðbeiningar um gjaldskrár byggingarfulltrúa

    Mál 1909055 Allur ferill málsins

    Lagt fram ódagsett bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga til framkvæmdastóra/byggingarfulltrúa sveitarfélaga varðandi drög að samræmdri gjaldskrá byggingarfulltrúaembætta á Íslandi.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við drögin.

  10. 10. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2019

    Mál 1904005 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 151. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands sem haldinn var 3. september síðastliðinn.