Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 143

25. apríl 2016, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Ragnar Sigurðsson, varaformaður
  • Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, varamaður
  • Valur Sveinsson, embættismaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 472 liður 16

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 143 frá 25.apríl 2016, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 200 liður 6

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 143 og nr. 144, teknar fyrir saman til umfjöllunar.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Valdimar O. Hermannsson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 143 frá 25.apríl 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umsókn um stækkun á lóð

    Mál 1604119 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Andra Martin Sigurðssonar, dagsett 20. apríl 2016, þar sem sótt er um stækkun lóðar hans, að Holtagötu 2 á Reyðarfirði, um rúma þrjá metra til austurs. Gert er ráð fyrir byggingu bílskúrs að nýjum lóðarmörkum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, stækkun lóðarinnar að Holtagötu 2 og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  2. 2. 735 Strandgata 1a - byggingarleyfi, breytt notkun

    Mál 1604102 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Jaroslaw Grzegorz Zajaczkowski, dagsett 10. apríl 2016, þar sem óskað er eftir afstöðu nefndarinnar til hugmynda um að breyta notkun húsnæðis hans að Strandgötu 1a á Eskifirði úr geymslu í einbýlishús.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í erindið enda eru fyrirhugaðar breytingar í samræmi við gildandi skipulag.

  3. 3. 740 Naustahvammur 54 - Byggingarleyfi, niðurrifs á einbýlishúsi

    Mál 1604129 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Björgunarsveitarinnar Gerpis, dagsett 25. apríl 2016, þar sem óskað er eftir að leyfi til að rífa hús félagsins að Naustahvammi 54 á Norðfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin leyfi liggja fyrir.

  4. 4. Forkaupslisti Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1603112 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa, dagsett 5. apríl 2016, um forkaupsréttarlista Fjarðabyggðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að forkaupslista verði breytt til samræmis við minnisblað fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs.

  5. 5. Áhaldahús Neskaupstað - stöðumat

    Mál 1603087 Allur ferill málsins

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra að vinna áfram að málinu í tenglsum við úttektir við á öðrum stofnunum og vísar jafnframt til fjárlagagerðar.

  6. 6. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands árið 2016

    Mál 1602074 Allur ferill málsins

    Lagtt fram til kynningar

  7. 7. Stofnun starfshóps um göngu- og hjólreiðastíga

    Mál 1510014 Allur ferill málsins

    Farið yfir núverandi stígakerfi og gerðar tillögur að framtíðarskipulagi stígakerfisins.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra að vinna að kostnaðarmati hjóla og göngustígs frá þéttbýlinu á Reyðarfirði út að Álveri á grunni eldri vegar. Einnig að hyggja að lagfæringum á eldri stígum í sveitarfélaginu og frekari útfærslum á þeim.

  8. 8. Verkefni framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs 2016

    Mál 1601209 Allur ferill málsins

    Farið yfir þau verkefni sem eru í gangi, helstu verkefni eru bygging leikskóla, útboð klæðningar og gluggaskipta í Egilsbúð, verkefni á höfnum og verkefni tengd framkvæmdum hjá Eskju og Loðnuvinnslunnar.

  9. 9. Sjálfbærniverkefni Alcoa og Landsvirkjunar 2016

    Mál 1604064 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð ársfundar Sjálfbærniverkefnis Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar á Austurlandi sem haldinn verður 3.maí nk. milli kl 14:00 og 18:00 í Valaskjálf á Egilsstöðum.

    Lagt fram til kynningar.