Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 558

19. mars 2018, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2017 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1712038 Allur ferill málsins

    Trúnaðarmál.

    Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2017 lagður fram.

    Jafnframt kynnt drög að endurskoðunarskýrslu. Bæjarráð vísar ársreikningi fyrir Fjarðabyggð og stofnanir til fyrri umræðu í bæjarstjórn 22. mars nk. Ársreikningur verður undirritaður á fundi bæjarráðs fimmtudaginn 22. mars fyrir bæjarstjórnarfund.

  2. 2. Rekstur Uppsala til framtíðar

    Mál 1803070 Allur ferill málsins

    Framlögð skýrsla Grétu Garðarsdóttur framkvæmdastjóra hjúkrunarheimilanna Uppsala og Hulduhlíðar, um rekstrarhæfi heimilanna ásamt minnisblaði fjármálastjóra um fjárhagsstöðu Uppsala. Gögn eru merkt trúnaðarmál.

    Farið yfir fjárhagsvanda hjúkrunarheimilisins Uppsala en nauðsynlegt er að Fjarðabyggð leysi úr bráðum fjárhagsvanda heimilisins.

    Bæjarráð samþykkir að heimila fjármálastjóra að lána Hjúkrunarheimilinu Uppsölum allt að 30 milljónir kr. Bæjarstjóra jafnframt falið að rita heilbrigðisráðherra bréf þar sem óskað er eftir endurskoðun á framlögum til hjúkrunarheimila og stöðu þeirra í dag. Jafnframt felur bæjarráð framkvæmdastjóra og félagsmálastjóra ásamt framkvæmdaráði hjúkrunarheimilanna, að meta hjúkrunarþörf og stöðu reksturs og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

    Lánveitingu til Hjúkrunarheimilisins Uppsala vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  3. 3. Fjárhagsáætlun 2018 - viðauki 1

    Mál 1803087 Allur ferill málsins

    Framlagður viðauki 1 frá fjármálastjóra við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2018 í samræmi við samþykkt bæjarráðs 12. mars sl. vegna launaþróunartryggingar, sjá mál nr. 1803026.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  4. 4. Málefni tækjamiðstöðvar 2018

    Mál 1803092 Allur ferill málsins

    Framlag til kynningar minnisblað sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissvið um tillögu að endurnýjun bíla og tækja á árinu 2018.

  5. 5. Fjarðabyggðarhöllin - bílasýning

    Mál 1803028 Allur ferill málsins

    Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd erindi frá Gísla B. Gíslasyni en hann óskar eftir því að fá Fjarðabyggðarhöllina undir bílasýningu í sumar. Ekki yrði selt inn á sýninguna og er óskað eftir gjaldfrjálsum afnotum af höllinni. Íþrótta- og tómstundanefnd líst ágætlega á að auka nýtingarmöguleika hallarinnar en vísar beiðninni um gjaldfrjáls afnot til bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir að veita styrk sem nemur afnotum af Fjarðabyggðahöllinni. Kostnaði mætt af liðnum óráðstafað 21690. Jafnframt beinir bæjarráð því til forstöðumanns hússins og sýningarhaldara að fylgja leiðbeiningum sem koma fram í minnisblaði íþrótta- og tómstundafulltrúa.

  6. 6. Hópslysaæfing í apríl 2018

    Mál 1803093 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað slökkviliðsstjóra vegna hópslysaæfingar sem fyrirhuguð er 14.apríl nk. Gert er ráð fyrir að allt að 100 manns taki þátt í æfingunni en áætlaður kostnaður við hana er um 600.000 kr.

    Bæjarráð samþykkir að hópslysaæfing fari fram og kostnaði af henni mætt af liðnum óráðstafað 21690.

  7. 7. Kaup á landi á æfingarsvæði klúbbsins

    Mál 1803103 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur bréf frá Golfklúbbi Norðfjarðar frá 16.mars 2018, en klúbburinn sækir um styrk vegna landakaupa á æfingasvæði klúbbsins.

    Bæjarráð samþykkir að greiða Golfklúbbi Norðfjarðar 1 millj. kr fyrirfram af rekstrar- og uppbyggingarframlagi ársins 2019. Framlagi að upphæð 1 millj. kr vísað til umræðu og fjárhagsáætlunargerðar vegna ársins 2019.

  8. 8. Frumvarp til laga um persónuvernd

    Mál 1612047 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar frumvarp til laga um persónuvernd. Umsögnum ber að skila fyrir 19. mars nk.

    Bæjarráð tekur undir umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Vísað til bæjarritara.

  9. 9. Upplýsingaöryggismál - útfærsla öryggisstefnu

    Mál 1803097 Allur ferill málsins

    Framlagðar sem trúnaðarmál útfærslur öryggisstefnu sveitarfélagsins sem lýsir nánari framkvæmd reksturs upplýsingatæknikerfa sem uppfyllir kröfur um öruggan rekstur m.t.t. persónuverndarlaga og upplýsingaöryggis. Jafnframt lagt fram minnisblað sem trúnaðarmál.

    Bæjarráð samþykkir útfærslur öryggisstefnu Fjarðabyggðar.

  10. 10. Upplýsingaöryggismál - öryggiskröfur ásamt hlítingarlista

    Mál 1803098 Allur ferill málsins

    Framlagðar til afgreiðslu sem trúnaðarmál öryggiskröfur ásamt hlítingarlista vegna reksturs upplýsingatæknikerfa. Meðfylgjandi eru minnisblöð um málið einnig lögð fram sem trúnaðarmál.

    Bæjarráð samþykkir öryggiskröfur fyrir rekstur upplýsingatæknikerfa.

  11. 11. Upplýsingaöryggismál - upplýsingaöryggisreglur

    Mál 1803096 Allur ferill málsins

    Framlagðar sem trúnaðarmál reglur um upplýsingaöryggi sem taka til alls reksturs sveitarfélagsins. Um er að ræða hluta af öryggiskerfi sem eru innri gögn. Jafnframt lagt fram minnisblað sem trúnaðarmál.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti reglur um upplýsingatækniöryggi og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  12. 12. Upplýsingaöryggismál - neyðaráætlun

    Mál 1803099 Allur ferill málsins

    Framlögð sem trúnaðarmál neyðaráætlun fyrir upplýsingatæknirekstur sveitarfélagsins ásamt minnisblaði.

    Bæjarráð samþykkir neyðaráætlun fyrir rekstur upplýsingatæknikerfa.

  13. 13. Fyrirspurn um söluferli

    Mál 1803105 Allur ferill málsins

    Framlögð fyrirspurn Sævars Jónssonar um söluferli vegna makaskipta lands úr Borgum.

    Bæjarráð metur í hvert skipti fyrir sig kaup á landi fyrir sveitarfélagið og í þessu tilfelli voru boðin makaskipti á landi og er það í ferli. Bæjarstjóra falið að svara bréfritara.

  14. 14. Ljósleiðaralagning 2018 - Ísland ljóstengt

    Mál 1710073 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að samningi við Fjarskiptasjóð vegna styrkúthlutunar til ljósleiðaralagningar í Norðfjarðarsveit á árinu 2018, ásamt minnisblaði sviðsstjóra veitusviðs.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

    Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

  15. 15. Byggðaáætlun 2017 - 2023

    Mál 1604003 Allur ferill málsins

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið vekur athygli á tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í byggðamálum. Frestur til að gera athugasemdir er til 21. mars.

    Vísað til atvinnu- og þróunarstjóra og honum falið að vinna umsögn í samráði við bæjarstjóra.

  16. 16. 339.mál til umsagnar frumvarp til laga um Þjóðskrá Íslands, 339. mál.

    Mál 1803071 Allur ferill málsins

    Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um Þjóðskrá Íslands.

    Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 3. apríl.

    Vísað til forstöðumanns stjórnsýslu og honum falið að leggja umsögn um frumvarpið fyrir bæjarráð.

  17. 17. 200.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga

    Mál 1803067 Allur ferill málsins

    Tillaga umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis til þingsályktunar um skiptingu útvarstekna milli sveitarfélaga. Undirrituð umsögn berist eigi síðar en 28. mars nk.

    Vísað til bæjarstjóra sem leggur fram umsögn á næsta fundi bæjarráðs.

  18. 18. Fundargerðir stjórnar SSA 2018

    Mál 1802003 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar SSA frá 5.mars 2018, lögð fram til kynningar.

  19. 19. Barnaverndarfundagerðir 2018

    Mál 1801097 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 81 frá 8. mars 2018, lögð fram til kynningar.

  20. 20. Íþrótta- og tómstundanefnd - 46

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 15. mars sl. lögð fram til kynningar.