Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 451

9. nóvember 2015, kl. 17:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 190 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs, nr. 451 og 452, teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O Hermannsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Dýrunn Pála Skaftadóttir, Einar Már Sigurðarson, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 9. nóvember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjarðabyggð til framtíðar Trúnaðarmál.

    Mál 1411075 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri.

    Farið yfir framvindu verkefna sem tengjst Fjarðabyggð til framtíðar.

    Liðurinn er TRÚNAÐARMÁL.

  2. 2. Hjúkrunarheimilin í Fjarðabyggð

    Mál 1511045 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Framlagt minnisblað Hrannar Pétursdóttur vegna skoðunar á hjúkrunarheimilum í Fjarðabyggð samanber bókun bæjarráðs Fjarðabyggðar frá. 5. október sl.

    Minnisblaðið er lagt fram sem TRÚNAÐARMÁL. Tekin umræða um skipulag og rekstur hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð. Vísað til félagsmálanefndar.

  3. 3. Málefni Eskifjarðarvallar

    Mál 1409085 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað framkvæmdasviðs um helstu verkþætti og kostnað við lagningu gervigrass á knattspyrnuvöllinn á Eskifirði.

    Lagt fram til kynningar.

  4. 4. Rekstur Egilsbúðar

    Mál 1012090 Allur ferill málsins

    Tekin umræða um fyrirkomulag á rekstri Egilsbúðar en samningur við Fjarðaveitingar ehf. um reksturinn rennur út 1.desember nk.

    Bæjarráð heimilar framlengingu um einn mánuð eða til 31. desember 2015 og líkur samningi þá. Vísað til bæjarstjóra til vinnslu.

  5. 5. Áfangastaðurinn Austurland - kynning

    Mál 1503052 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar erindi frá Austurbrú um áfangastaðinn Austurland og skipulagsvinnu. FAUST hefur skuldbundið sig til að sækja fjármagn til yfirstjórnar (Daniel Byström) verkefnisins á árinu 2016 - 2017 í samstarfi við Austurbrú en fjármagn til hönnunarvinnu, verkferla, innleiðingar og markaðssetningar verður sótt eftir þeim leiðum sem áður voru nefndar. Óskað verður eftir samvinnu við sveitarfélögin um það verkefni.

    Vísað til menningar- og safnanefndar.

  6. 6. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2015

    Mál 1502053 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar frá 30.október 2015, lögð fram til kynningar.

  7. 7. 735 Deiliskipulag Leira 1, breyting - sameining lóða

    Mál 1510154 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Fjallað um úthlutun lóða að Leirukrók 5,7,9 og 11 á Eskifirði.

    Gert er ráð fyrir að lóðirnar við Leirukrók 5, 7, 9, 11, 14, 16 og 18 verði sameinaðar í eina. Gatan Leirukrókur verður gerð að tveimur botnlöngum. Rætt um samkomulag við Eskju um álagningu gatnagerðargjalda þar sem þegar álögð gjöld verði bakfærð og við endurúthlutun verði gatnagerðargjöld lögð á í samræmi við nýtt deiliskipulag. Bæjarráð samþykkir samkomulag sem fyrir liggur.

  8. 8. Ofanflóðavarnir Eskifirði. Verkhönnun árfarvega

    Mál 1403026 Allur ferill málsins

    Umræða um ofanflóðavarnir á Eskifirði og hönnun þeirra.

    Vísað til næsta fundar bæjarráðs.