Bæjarráð, fundur 380
7. apríl 2014, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 153 liður 4
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 7. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2013
Mál 1403085 Allur ferill málsins
Trúnaðarmál.
Þennan dagskrárlið sátu fjármálastjóri og endurskoðandi sveitarfélagsins auk Ástu Kristínu Sigurjónsdóttur bæjarfulltrúa.
Kynnt drög að ársreikningi ásamt endurskoðunarskýrslu.
Bæjarráð vísar ársreikningi fyrir Fjarðabyggð og stofnanir til fyrri umræðu í bæjarstjórn 10. apríl nk. Ársreikningur verður undirritaður á fundi bæjarráðs fimmtudaginn 10. apríl fyrir bæjarstjórnarfund.
-
2. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2014
Mál 1402185 Allur ferill málsins
Fram lögð til kynningar gögn frá aðalfundi sem haldinn var 27. mars s.l.
-
3. Arðgreiðsla Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.vegna 2013
Mál 1404005 Allur ferill málsins
Fram lagt til kynningar bréf Lánasjóðs sveitarfélaga um arðgreiðslu vegna ársins 2013.
Arðgreiðsla til Fjarðabyggðar nemur 10.722.100 kr.
-
4. Bygging leikskóla á Neseyri
Mál 1402081 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar til bæjarráðs ákvörðun um hönnun og útboð á nýjum leikskóla í Neskaupstað. Nefndin leggur til að lokið verði við hönnun og boðin út 8 deilda leikskóli í Neskaupstað. Með tillögunni er tryggt að byggður sé leikskóli útfrá núverandi þörf og væntingum um stækkandi samfélag á Norðfirði. Þá er einnig lagt til að P-ark og verkfræðistofan Mannvit vinni áfram að útboðsgögnum og stefnt verði á að bjóða verkið út eins fljótt og kostur er.
Bæjarráð samþykkir tillögu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
5. Hugmyndir um samstarf/sameiningu leik- og grunnskóla á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði
Mál 1305028 Allur ferill málsins
Fram lagt minnisblað fræðslustjóra um samreksturs leik- og grunnskóla á Fáskrúðsfirði undir stjórn skólastjóra Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar meðan á leyfi leikskólastjóra stendur.
Bæjarráð samþykkir tillögu um samrekstur til eins árs.
-
6. Lausaganga hunda á Eskifirði
Mál 1404004 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf Kristins J Ragnarssonar um lausagöngu hunda á Eskifirði.
Bæjarráð telur ólíðandi að hundar gangi lausir í þéttbýli í sveitarfélaginu þrátt fyrir skýr ákvæði samþykktar um að lausaganga hunda sé bönnuðu og vísar málinu til bæjarstjóra til vinnslu.
-
7. Nýtt starfsmat hlutastarfandi starfsmanna slökkviliðs.
Mál 1403151 Allur ferill málsins
Fram lagt minnisblað um hækkanir launa hlutastarfandi starfsmanna slökkviliðs Fjarðabyggðar vegna starfsmats.
Kostnaður vegna breytinga verður tekin til afgreiðslu samhliða breytingum á kjarasamningum.
-
8. Sveitarstjórnakosningar 2014
Mál 1403134 Allur ferill málsins
Fram lagt minnisblað vegna skipunar í kjörstjórnir í tengslum við sveitarstjórnarkosninga laugardaginn 31.maí 2014 og ákvörðun um kjörstaði og opnunartíma þeirra.
Bæjarráð samþykkir að kjörstaðir í Fjarðabyggð vegna sveitarstjórnakosningar 2014 verði.
Grunnskóli Stöðvarfjarðar á Stöðvarfirði
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar á Fáskrúðsfirði
Safnaðarheimili Reyðarfjarðarkirkju á Reyðarfirði
Kirkju- og menningarmiðstöðin á Eskifirði
Nesskóli á Norðfirði
Sólbrekka í Mjóafirði.
Kjörstaðir opna kl 09:00 og loka 22:00 nema í Mjóafirði þar sem kjörstaður er opnaður kl. 09:00 og hann lokar strax og lagaskilyrði verða til, í síðasta lagi kl. 17:00.
Bæjarráð vísar tilnefningu í undirkjörstjórnir til afgreiðslu næsta bæjarstjórnarfundar.
-
9. Yfirlit yfir mál Fjarðabyggðar hjá lögmanni
Mál 1404011 Allur ferill málsins
Fram lögð greinargerð frá Sókn lögmannsstofu um stöðu mála sem stofan er að vinna að fyrir Fjarðabyggð.
-
10. Bókun frá ferða- og menningarmálanefnd Seyðisfjarðarkaupstað um ferjusiglingar.
Mál 1311180 Allur ferill málsins
Fram lögð bókun frá ferða- og menningarmálanefnd Seyðisfjarðarkaupstaðar vegna ferjusiglinga Norrænu og samþykkt hafnarstjórnar Fjarðabyggðar um að málið.
Bæjarráð vísar til bókunar sinnar vegna málsins sem m.a. hefur verið birt á heimasíðu sveitarfélagsins.
-
11. Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar
Mál 1404018 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf frá Knattspyrnufélagi Fjarðabyggðar um framlög sveitarfélagsins til félagsins vegna vallarumsjónar og annarra þátta.
Bæjarstjóra falið að taka saman gögn um málið og leggja fyrir bæjarráð.
-
12. 335.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu til að draga úr skaðlegum afleiðingum vímuefnaneyslu
Mál 1404017 Allur ferill málsins
Fram lögð tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu til að draga úr skaðlegum afleiðingum vímuefnaneyslu.
Vísað til félagsmálanefndar.
-
13. Fundargerðir stjórnar SSA 2014
Mál 1402146 Allur ferill málsins
Fram lögð fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi frá 25. mars s.l.
-
14. Fræðslu- og frístundanefnd - 51
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar frá 1. apríl lögð fram til kynningar.
-
15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 90
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 3. apríl lögð fram til kynningar.