Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 226

20. desember 2010, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 84 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umræðu og afgreiðslu.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Niðurskurður í heilbrigðismálum á Austurlandi

    Mál 1010048 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu Einar Rafn Haraldsson forstjóri HSA, Emil Sigurjónsson forstöðumaður mannauðssviðs HSA og Gunnar Jónsson mannauðsstjóri.  Einar Rafn þakkaði sérstaklega hvernig bæjarstjórn Fjarðabyggðar tók á málum í tengslum við niðurskurðaráform ríkisins. Farið var yfir stöðu mála í tengslum við samþykkt fjárlaga 2011. Fram kom að reynt verði að haga starfsmannamálum þannig að ekki þurfi að koma til uppsagna hjá HSA.

  2. 2. Fjárhagsáætlun 2011

    Mál 1009099 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Álagningarstofnar 2011 verða sem hér segir:Fasteignaskattur A: 0,37 % af húsmati og lóðarmati.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Fasteignaskattur B: 1,32 % af húsmati og lóðarmati.Fasteignaskattur C: 1,32 % af húsmati og lóðarmati.Lóðarleiga íbúðarhúsnæði: 0,85 % af lóðarhlutamati.Lóðarleiga atvinnuhúsnæði: 1,00% af lóðarhlutamati.Vatnsskattur: 0,28% af húsmati.Holræsagjald: 0,26 % af húsmati.Sorphreinsunargjald: 23.778 kr. á heimili.Sorpeyðingargjald: 10.168 kr. á heimili.Fjöldi gjalddaga fasteignagjalda verði átta - mánaðarlega frá 1. febrúar.  Eindagi fasteignagjalda verður síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.

    Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra að reglur um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega verði óbreyttar á milli áranna 2010 og 2011.

  3. 3. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2011

    Mál 1012130 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir framlagða gjaldskrá hafnarsjóðs en hækkun hennar frá 1.1.2011 er um 2,6%

  4. 4. Bréf frá foreldrafélagi leikskólans Sólvalla vegna innheimtuaðgerða

    Mál 1012120 Allur ferill málsins

    Bréf stjórnar Foreldrafélags leikskólans Sólvalla frá 9.desember vegna innheimtuaðgerða sveitarfélagsins.  Forstöðumanni stjórnsýslu og fjármálastjóra falið að svara erindi.

  5. 5. Íslandsmeistaramót í Skák á Austurlandi

    Mál 1012083 Allur ferill málsins

    Beiðni um styrk vegna kennslu grunnskólabarna og Íslandsmeistaramótsins í skák 2011.  Bæjarráð samþykkir að styrkja kennslu grunnskólabarna um 50.000 kr. af liðnum óráðstafað og vísar erindi til fræðslu- og frístundanefndar til upplýsinga.

  6. 6. Hluthafafundur Raflagna Austurlands 22.desember

    Mál 1012131 Allur ferill málsins

    Boðað er til hluthafafundar Raflagna Austurlands 22.desember kl. 14:00 á Stöðvarfirði. Bæjarráð felur Steinþóri Péturssyni að vera fulltrúi á fundinum.

  7. 7. Lokun Landsbankans á Stöðvarfirði

    Mál 1008096 Allur ferill málsins

    Beiðni Landsbanka Íslands um áframhaldandi afnot af húsnæði eldri borgara á Stöðvarfirði.  Bæjarráð samþykkir beiðni bankans og felur mannvirkjastjóra að ganga frá samningi um afnot til 1.maí 2011.

  8. 8. Athugasemdir forstöðumanna bókasafna við fyrirhugaðan niðurskurð á grunnþjónustu safnanna á fjárhagsáætlun 2011

    Mál 1012139 Allur ferill málsins

    Bréf starfsmanna bókasafnanna frá 17.desember og minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu frá 20.desember er varðar lækkun á framlagi til bókakaupa á árinu 2011.  Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfi starfsmanna og vísar erindi jafnframt til kynningar í atvinnu- og menningarnefnd.

  9. 9. Verkefnastjóri - æskulýðs- og íþróttamál

    Mál 1012146 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað bæjarstjóra og fræðslustjóra frá 20.desember. Bæjarráð samþykkir að ráðinn verði verkefnastjóri í íþrótta-og æskulýðsmálum tímabundið út árið 2011. Bæjarstjóri og sviðstjóri fræðslu-og frístundamála munu annast ráðninguna en áætlað er að starfið verði auglýst strax í upphafi árs 2011.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  10. 10. Snjóflóðavarnir Tröllagili Norðfirði.

    Mál 0903071 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf umhverfisráðuneytisins frá 20.desember þar sem fram kemur að mögulegt er að hefja framkvæmdir við ofanflóðavarnargarða á Tröllagiljasvæðinu í vor.  Bæjarráð felur mannvirkjastjóra að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að framkvæmdir geti hafist.

  11. 11. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2010

    Mál 1011072 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 6 frá 16.desember lögð fram.