Bæjarráð, fundur 159
25. ágúst 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. Tillögur um skipulagðar samgöngur nemenda í VA og íþróttahópa skólaárið 2009-2010
Mál 0908047 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri, umhverfisstjóri og fræðslustjóri sátu þennan lið fundarins. Framlagt minnisblað vegna fyrirkomulags á skipulögðum skólaakstri fyrir framhaldsskólanema á haustönn 2009 og yfirlit yfir kostnað vegna skipulagðra íþróttaferða og ferða í VA. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um fyrirkomulag á skipulögðum skólaakstri í VA á haustönn 2009. Bæjarráð felur fjármálastjóra, umhverfisstjóra og fræðslustjóra áframhaldandi útfærslu íþróttaferða í samráði við íþróttahreyfinguna.
-
2. Skýrsla um ferð til Eskilstuna
Mál 0908051 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar skýrsla Guðmundar R. Gíslasonar.
-
3. Beiðni um viðhaldviðgerðir og endurbætur í Sigfúsarhúsi
Mál 0908049 Allur ferill málsins
Bréf Félags eldri borgara á Norðfirði frá 17.8. þar sem óskað eftir endurbótum á Sigfúsarhúsi á árinu 2010. Mannvirkjaviði falið að eiga fund með félaginu þar sem farið verði yfir óskir félagsins.
-
4. Félagsheimilið Valhöll - ósk um viðræður um leigu
Mál 0908039 Allur ferill málsins
Kaffihúsið á Eskifirði óskar eftir viðræðum um rekstur Valhallar Eskifirði. Forstöðumanni stjórnsýslu og ferða- og menningarfulltrúa falið að funda með fulltrúa kaffihússins og fara yfir hugmyndir hans.
-
5. Beiðni um umsögn um frumvarp til laga um kosningar til sveitarstjórna
Mál 0908005 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Alþingis frá 4.8. þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um kosningar til sveitarstjórna.
-
6. Atvinnuleysi í júlí
Mál 0908053 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar yfirlit yfir atvinnuleysi á Austurlandi og í Fjarðabyggð í júlí.
-
7. Íbúaþróun á Austurlandi
Mál 0908054 Allur ferill málsins
Framlagðar upplýsingar um íbúaþróun á Austurlandi frá 2002.
-
8. Tillaga að opnunartíma bókasafnsins á Fáskrúðsfirði
Mál 0908056 Allur ferill málsins
Tillaga forstöðumanns Safnastofnunar að breyttum opnunartíma. Bæjarráð staðfestir ákvörðun MÍF um breyttan opnunartíma bókasafnsins á Fáskrúðsfirði.
-
9. Gjaldskrá fyrir hunda og kattahald
Mál 0908065 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga umhverfisstjóra um breytingar á gjaldskrá fyrir hunda og kattahald. Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá í samræmi við hækkun á vísitölu frá síðustu gjaldskrárhækkun.