Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 140

10. mars 2009, kl. 09:00 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2009 - Hagræðingarhugmyndir

    Mál 2009-01-23-102 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu forstöðukona fjármála, forstöðumaður mannauðsmála, fræðslustjóri, framkvæmdastjóri hafnanna og mannvirkjastjóri. Rætt var um endurskoðun og endurskipulagningu vegna launaútgjalda.

  2. 2. Stuðningur sveitarfélaga við íþróttastarf

    Mál 2009-02-17-234 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar um aukinn styrk á árinu 2009. Frestað til næsta fundar.

  3. 3. Umfjöllun um lóðamál við Mjóeyrarhöfn

    Mál 2009-02-13-215 Allur ferill málsins

    Umsagnir framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna frá 2.3. og skipulagsfulltrúa frá 18.2. Frestað til næsta fundar.

  4. 4. Afmælisár Eskilstuna

    Mál 0903028 Allur ferill málsins

    Boð um þátttöku í 350 ára afmæli Eskilstuna. Frestað.

  5. 5. Atvinnuleysi í Fjarðabyggð

    Mál 0903023 Allur ferill málsins

    Tölur um atvinnuleysi í Fjarðabyggð. Frestað

  6. 6. Uppgjör vegna skýrslugerðar um jarðgangagerð

    Mál 0903036 Allur ferill málsins

    Lagður fram tölvupóstur bæjarstjórans á Seyðisfirði er varðar uppgjör vegna skýrslugerðar um jarðgangnagerð. Frestað til næsta fundar

  7. 7. Umsókn stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur um NORA styrk

    Mál 0903037 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur um NORA styrk. Frestað

  8. 8. Áætlanir um úthlutanir framlaga á árinu 2009

    Mál 0903003 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 20.2. um áætlanir vegna úthlutana framlaga á árinu 2009. Erindi hefur verið vísað til fjármálasviðs.

  9. 9. Upplýsingar vegna vatns- og jarðhitaréttinda

    Mál 0903033 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf forsætisráðuneytisins frá 2.3.2009 er varðar beiðni um upplýsingar vegna vatns- og jarðhitaréttinda. Erindi hefur verið vísað til mannvirkjasviðs.