Bæjarráð, fundur 139
3. mars 2009, kl. 09:00 til 11:00, Molinn fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2009 - Hagræðingarleiðir
Mál 2009-01-23-102 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu starfandi tómstundastjóri og æskulýðs- og íþróttafulltrúi og gerðu grein fyrir hagræðingarleiðum í málaflokki 06.
-
2. Umsókn um styrk vegna húsbyggingar
Mál 2009-02-24-276 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Björgunarsveitarinnar Ársólar frá 16.2. þar sem farið er fram á styrk til að ljúka viðbyggingu á húsi sveitarinnar Þórðarbúð. Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um frekari styrki til sveitarinnar
-
3. Breytingar á tillögu um deiliskipulag á Neseyri
Mál 2009-02-25-282 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar greinargerð skipulagsfulltrúa frá 24.2. vegna breytinga á tillögu um deildiskipulag á Neseyri í Neskaupstað.
-
4. Viðræður um sameiginlegan rekstur félagsþjónustu
Mál 2009-02-24-279 Allur ferill málsins
Bréf Fljótsdalshéraðs frá 20.2. þar sem tilkynnt er um skipan í viðræðuhóp um sameiginlegan rekstur félagsþjónustu Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs. Bæjarráð skipar bæjarstýru, félagsmálastýru og formann félagsmálanefndar í viðræðuhóp f.h. Fjarðabyggðar.
-
5. Umsókn Fjarðabyggðar um heimild til að fara með virkan eignarhlut í Sparisjóði Norðfjarðar
Mál 0902051 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Fjármálaeftirlitsins frá 19.2. þar sem óskað er eftir frekari gögnum vegna umsóknar um heimild til að fara með virkan eignarhlut í Sparisjóði Norðfjarðar. Bæjarráðsmenn undirrituðu yfirlýsingu í samræmi við óskir Fjármálaeftirlitsins.
-
6. MÍF nr. 21 frá 23.2.
Mál 0903002 Allur ferill málsins
4.liður. Samvinna skíðasvæðanna í Oddsskarði og Stafdal.
-
7. Samvinna skíðasvæðanna í Oddsskarði og Stafdal
Mál 2009-02-11-196 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar svarbréf ferða- og menningarfulltrúa frá 25.2. við bréfi bæjarstjórans á Seyðisfirði frá 3.2.
-
8. Umsókn um byggðakvóta fyrir Stöðvarfjörð
Mál 0902042 Allur ferill málsins
Framlögð umsókn bæjarstýru frá 25.2. um byggðakvóta fyrir Stöðvarfjörð.
-
9. Umsókn um byggðakvóta fyrir Fáskrúðsfjörð
Mál 0902043 Allur ferill málsins
Framlögð umsókn bæjarstýru frá 25.2. um byggðakvóta fyrir Fáskrúðsfjörð.
-
10. Vitaverkefnið á Listahátíð 2009
Mál 0903022 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar samningur Listahátíðar í Reykjavík við Menningarráð Austurlands og Fjarðabyggð vegna Dalatangavita í Vitaverkefninu á Listahátíð 2009.
-
11. Snjóflóðavarnir Norðfirði
Mál 0903024 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins . Rætt um framkvæmdaáætlun verksins.
-
12. Vegaskrá
Mál 0903014 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna fundar sambandsins með Vegagerð ríkisins sem haldinn var 25.2.
-
13. Viðbót við samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar
Mál 2009-01-23-102 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi bráðabirgðaákvæði við samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar: Þrátt fyrir ákvæði 7.gr. 1.mgr. um fundartíma bæjarstjórnar skal bæjarstjórn að jafnaði halda reglulega fundi einu sinni í mánuði, 1.fimmtudag hvers mánaðar til loka yfirstandandi kjörtímabils. Þrátt fyrir ákvæði 45.gr. 1.mgr. um fundartíma bæjarráðs skal bæjarráð að jafnaði halda fundi aðra hverja viku á reglulegum fundartímum til loka þessa kjörtímabils. Aðrar nefndir, ráð eða stjórnir skulu með sama hætti fækka fundartímum þannig að reglulegir fundir séu að jafnaði haldnir mánaðarlega. Í hagræðingarskyni skal halda símafundi þegar þess er kostur. <?xml:namespace prefix = o />Greinargerð fylgir tillögu.
-
14. Atvinnuleysi í Fjarðabyggð
Mál 0903023 Allur ferill málsins
Bæjarstýra lagði fram minnispunkta vegna fundar sem haldinn var 27.2. með fulltrúm AFLs, Þekkingarnets Austurlands, Austurnets, Rauða Krossinum og Vinnumálastofnun. Valdimar vék af fundi kl.10:10.
-
15. Bygginga- og lóðaframkvæmdir.
Mál 0903001 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sat Lulu Munk Andersen byggingafulltrúi.Framlögð gögn vegna byggingaframkvæmda á árunum 2006 - 2008