Breytt skipulag lögreglunnar
Mál 2610020 Fyrst á dagskrá 5. október 2026, síðast 21. október 2026. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 21. október 2026, frá 0:07:56 og 2 kaflar til viðbótar í ferlinum
Í heiti málsins: Skipulag
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
- Upptaka af umræðu
-
2026
Bæjarráð, fundur 963 liður 4
Dómsmálaráðherra hefur kynnt fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglu. Með breytingunum stendur til að lögregluembættum verði fækkað úr níu í þrjú auk þess sem skerpt verður á hlutverki ríkislögreglustjóra.
Bókun bæjarráðs:
Lesa alla bókunina (274 orð til viðbótar)
"Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á skipulagi lögreglu sem fela í sér sameiningu lögregluembættanna á Austurlandi, Suðurlandi og í Vestmannaeyjum. Bæjarráð hafnar því að sjálfstætt lögregluembætti á Austurlandi verði lagt niður og stjórnun löggæslu í landshlutanum verði færð í margra klukkustunda fjarlægð og út fyrir Norðausturkjördæmi.
Á Austurlandi er umfangsmikil atvinnustarfsemi, mikill innflutningur og útflutningur um hafnir og mikilvæg verkefni á sviði landamæraeftirlits. Þá hefur reynsla undanfarinna ára af náttúrvá sýnt með ótvíræðum hætti mikilvægi staðbundinnar þekkingar, skýrrar ábyrgðar og öflugrar stjórnunar almannavarna í heimabyggð.
Sveitarfélög á Austurlandi hafa lengi kallað eftir fjölgun lögreglumanna, bættum tækjabúnaði og auknu landamæraeftirliti. Bæjarráð telur ljóst að svar við þeim þörfum felist ekki í að færa yfirstjórn embættisins frá landshlutanum. Fækkun embætta og breyting á skipuriti jafngilda ekki eflingu löggæslu. Landfræðilegar fjarlægðir og verkefni lögreglunnar hverfa ekki við sameiningu.
Yfirlýsingar um óbreyttan fjölda starfsstöðva og aðstoðarlögreglustjóra í hverju umdæmi nægja ekki til að tryggja staðbundið ákvörðunarvald. Leggja þarf fram skýrar upplýsingar um valdheimildir, ráðstöfun mannafla, fjármögnun og stjórnun almannavarna. Án þeirra er enginn grundvöllur fyrir fullyrðingum um að breytingarnar styrki þjónustu og viðbragðsgetu á Austurlandi.
Bæjarráð telur fyrirhugaða tengingu Austurlands við Suðurland og Vestmannaeyjar illa samræmast landfræðilegum aðstæðum og þjónustutengslum. Komi til skoðunar breytingar á umdæmaskiptingu er mun eðlilegra að horfa til samstarfs við Norðurland. Slík skoðun verður þó að byggjast á raunverulegu samráði við sveitarfélög og viðbragðsaðila og mati á áhrifum á öryggi íbúa.
Bæjarráð gerir kröfu um að fallið verði frá þessum áformum og þess í stað ráðist í raunverulega eflingu lögreglunnar á Austurlandi með auknum mannafla, bættum búnaði og fjárveitingum sem endurspegla umfang verkefnanna. Austurland þarf öflugt lögregluembætti með stjórnun og ákvörðunarvald í landshlutanum."
-
Bæjarstjórn, fundur 423 liður 1.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 963“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Opinber fundargerð á fjardabyggd.is
Upptaka bæjarstjórnarfundar 423. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:07:56 ég var að segja fyrir millitíð þar á eftir lið eitt fjögur breytt skipulag lögreglunnar það hefur jafnframt verið í fréttum og við bókuðum þar bæjarráðið ég var að segja þér fyrir millitil fyrst þegar ég sá þessa áform þá hélt ég að þetta væri bara eitthvað grín
- 0:08:24 eitthvað grín því að upphaflega áforma skjal snerist um það að skoða það hvort það væri hægt að fækka lögreglaembættunum á íslandi úr nýju niðri í fimm en svo kemur þetta róttæka frumvarp um að fækna þeim niðri í fimmt
- 0:08:52 að fækka þeim niðri þrjú og að lögregluembættið hér verði þá hluti af skrifstofu á selfossi og selfoss vestmannaeyjar og hérna norður eftir sé þá hluti of nýju lögregluembæti og ég var mjög ánægð með bókun bæjarás sem mótmælti þessu harkalega
- 0:09:20 harkalega og enda fullt erindi og tilefni til þarna gengur mun lengra heldur en áformagaskjalið sagði til um það er ekki verið að taka tillit til landfræðilegra aðstæðna og þarna væri miklu nær að horfa til kjördæmisins vegna þess að við erum bara nú þegar með ágætis reynslu á því hvernig okkur gengur að vera með starfsvæði vegagerðarinnar inn
- 0:09:48 starfsvæði vegagerðarinnar inn á suðurkjördæmi og nýlegt dæmi um það þegar á útboði er tekið um yfirlagningu vegarins um breiðamerkursand að það tæmir þá viðhaldspottinn hér og þarna er mara dans á milli þingmanna tveggja kjördæma sem eru líka að slást um fjármagni í sín brýnu hagsmunamál auðvitað fagnar maður því að það sé verið að fara í
- 0:10:16 þessi verði að fara í yfirlagningu á þjóðvegi eitt hvar svo sem það er það gagnast okkur öllum en þarna myndast einhvers konar táknstreita og þetta er ekki best til þess fallið að við hér sem erum að gæta hagsmuna þessa svæðis getum átt í opnu og góðu samtali við þá sem að fara með fjárveitinguna hverju sinni og jafnframt held ég að að okkar hagsmuna þessa
- 0:10:44 veit ég að okkar hagsmunir og hagsmunir suðurlands eru margt ólíkir þótt það sé ákveðin samhljómur auðvitað í mörgum málum og sérstaklega eins og í vestmannaeyjum en hér eru bara landfræðilegar áskoranir hér erum við búin að byggja upp gott heimi almannavarna og þetta fer ekkert saman ég ætla svo að fara yfir í fræ
Upptaka bæjarstjórnarfundar 423. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:14:28 aðeins undir fundargerðum bæjarráðs á þess kannski að hérna fara mikið í sömu liði hafa búið að fara sennilega vel yfir þessa liði hérna áðan kannski aðeins undirfundargerð bæjaráðs níundu sextíu þrjú máleitt fjögur sem er breytt skipulaglögreglunnar svo sem ragnarborg komi inn á ýmislegt þarna þetta liggur inn í samráðsskáttinni núna og eins og komið var hérna áðann þarna eru svona meiri breytingar en við gerð ráðar ráðs fyrir
- 0:14:56 svona meiri breytingar en við gerum ráð fyrir að yrðu hófum við að við svona áformin sem lágu fyrir hér fyrr á þessu ári og eðlilegt að við köllum eftir skýringum um nákvæmlega hvaða áhrif þetta muni hafa hérna okkar svæði við höfum ákveðnar áhyggjurast um að sjá í bókuninni það er alvegjör ljóst hérna sem mikilvægt að við lítum okkar okkar tækifæri núna til að veita umsókn um þetta mál og ef við getum fengið áheyrn einhvers staðar en í ráðuneytinu einhveru slíku er kalla eftir meiri upplýsingar um því
Upptaka bæjarstjórnarfundar 423. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:21:00 forseti ég ætla bara aðeins að fá að taka til málsetja undir bæjarráðið níundruð sextíu og þrjú þar ætla ég bara aðeins ekki að koma inn á breiðskiptalögreglunnar þetta er auðvitað gríðarlega stórt talsmálamál fyrir okkur á austurlandi að við stöndum verðum þá þjónustu og þá þekkingu sem við höfum hérna sérstaklega í ljósi svona almannavarna á þróaflóðahætti sem við búum við hérna á austurlandi það er auðvita mjörg mjögulegt að við höldum þessari þjónustökur og ég held að bókunni að komi á ágætta