Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2026

Breyting á aðalskipulagi v. Bensínsstöð við Búðareyri

Mál 2610010 Fyrst á dagskrá 12. október 2026, síðast 21. október 2026. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Skipulags- og framkvæmdanefnd.

Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 21. október 2026, frá 1:06:44

Í heiti málsins: Skipulag

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  • Upptaka af umræðu
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2026

    Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 70 liður 13

    Lögð fram tillaga um óverulega breytingu á aðalskipulagi á vinnslustigi vegna bensínstöðvar við Búðareyri. Tillagan snýr að því að landnotkun á hornlóðinni þar sem bensínstöð Orkunnar er, VÞ-300, sem er íbúðarbyggð haldi sér en í staðinn verði gerð óveruleg breyting sem bætir eftirfarandi við skilmála reitsins: Heimilt er að reka áfram bensínstöð á horni Búðareyrar og Réttarholts, meðan þörf er fyrir þjónustu af því tagi. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu á aðalskipulagi og vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  2. Bæjarráð, fundur 965 liður 40.13

    Fundargerðin „Skipulags- og framkvæmdanefnd - 70“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 423 liður 9

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir óverulegri breytingu á aðalskipulagi vegna lóðarinnar að Búðareyri 12 á Reyðarfirði.

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd tillögu að óverulegri breytingu á aðalskipulagi á vinnslustigi.

    Tillagan snýr að því að landnotkun á hornlóð að Búðareyri 12 á Reyðarfirði þar sem bensínstöð Orkunnar, sem er íbúðabyggð haldi sér en í staðinn verði gerð óveruleg breyting sem bætir eftirfarandi við skilmála reitsins: Heimilt er að reka áfram bensínstöð á horni Búðareyrar og Réttarholts, meðan þörf er fyrir þjónustu af því tagi.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum óverulega breytingu á aðalskipulagi vegna lóðarinnar að Búðareyri 12 á Reyðarfirði.

    Upptaka bæjarstjórnarfundar 423. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube

    Sjálfvirk uppskrift af kaflanum

    Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.

    • 1:06:44 á vinnslustigi vegna bensínstöðvar við búðareyri tillagan snýr að því að landnotkun á hornlóðinni þar sem bensínstödd orkunnar er sem heitir vaffþotn þrjú hundruð sem er íbúabyggð að hann haldi sér en í staðinn verði gerð ógurleg breyting á textanum sem fylgir og við skilmálaritsins á þann hátt að starfsemi bensínstödarinnar á búðareyrir tuttugu og átta verði áfram heimil
    • 1:07:12 þegar er tuttugu og átta verði áfram heimil en gert er ráð fyrir að íbúabyggð taki við þegar eftirspurn um jarðefnaeldsneyti minnkar hennar það er ekki verið að fara íta bensínstrengni neitt í burtu meðan hennar er þörf en þarna geta orðið íbúabygð til framtíðar og skipulason framkvæmdanefnd hefur samþykkt tillöguna fyrir sitt leyti
  4. Bæjarstjórn, fundur 423 liður 6.13

    Fundargerðin „Skipulags- og framkvæmdanefnd - 70“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is