Umsögn vegna breytingar á afgreiðslu Íslandspósts
Mál 2403168 Fyrst á dagskrá 25. mars 2024, síðast 26. mars 2024. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2024
Bæjarráð, fundur 840 liður 2
Framlögð bréf frá Íslandspósti vegna breytinga á þjónustu fyrirtækisins í póstmiðlun á Norðfirði, Fáskrúðsfirði, Eskifirði og í Breiðdal.
Bæjarráð harmar að dregið sé enn frekar úr póstþjónustu í Fjarðabyggð með boðuðum lokunum á póstafgreiðslum. Fjarðabyggð leggur þunga áherslu á að breytingar verði kynntar vel fyrir íbúum og tryggt verði að mótvægisaðgerðir tryggi þá þjónustu sem fyrirheit eru um. Fjarðabyggð hefur þegar áréttað að aðgengi að póstboxum verði tryggt á öllum stöðum þegar að breytingum kemur. Bæjarráð felur bæjarstjóra að veita umsögn.
-
Bæjarstjórn, fundur 374 liður 2.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 840“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.