Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2023

Kveðja til Grindavíkur

Mál 2311097 Á dagskrá 16. nóvember 2023. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.

Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 16. nóvember 2023, frá 0:56:00

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  • Upptaka af umræðu
  1. 2023

    Bæjarstjórn, fundur 363 liður 10

    Forseti mælti fyrir kveðju bæjarstjórnar Fjarðabyggðar til Grindvíkinga

    Síðastliðin laugardag sendi bæjarstjórn Fjarðabyggðar eftirfarandi kveðju til íbúa í Grindavík:

    Fyrir hönd íbúa Fjarðabyggðar sendir bæjarstjórn Fjarðabyggðar hlýjar kveðjur til íbúa Grindavíkur í þeirri miklu óvissu sem nú ríkir þar. Á stundum sem þessum sannar mikilvægi öflugra viðbragðsaðila sig, og það er aðdáunarvert að fylgjast með hve samhæft og öflugt viðbragðið hefur verið við krefjandi aðstæður.

    Hugur okkar allra er meðal Grindvíkinga sem hafa nú þurft að yfirgefa heimili sín og vita ekki hvenær þeir geta snúið aftur heim. Einnig hjá þeim viðbragðsaðilum sem nú leggja dag og nótt við að tryggja öryggi íbúa

    Engin tók til máls.

    Upptaka bæjarstjórnarfundar 363. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube

    Sjálfvirk uppskrift af kaflanum

    Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.

    • 0:56:00 níu atkvæði þá erum við komin í liðin kveðja til grindavíkur en á laugardaginn síðasta sendi bæjarstjórn kveðju fyrir hönd íbúa sveitarfélagsins til íbúa grindavíkur og ég ætla hér að lesa upp þessa kveðju hún hljómar svona fyrir hönd ibúa fjarðarbyggða sendi bæjarstrjórn fjarðarbygga hlýjar kveðjur til íbúa grindavíkur í þeirri miklu óvissu sem nú ríkir þar á stundum sem þessum sannar mikilvægi öflugar
    • 0:56:28 myndun sem þessum sannar mikilvægi öflugra viðbragðsaðila sig og það er aðdáunarvert að fylgjast með hve samhæft og öflugt viðbragð hefur verið við krefjandi aðstæður hugur okkar allra er meðal grindvíkinga sem hafa nú þurft að yfirgefa heimili sín og viti ekki hvenær þeir geta snúið aftur heim einnig hjá þeim viðbragðsaseðlum sem nú leggja dag og nótt við að tryggja öryggi íbúa orðiðlaust um þennan lið