Samkomulag um viðbótarlaun á einstök starfsheiti í leikskólum og heimaþjónustu
Mál 2309249 Fyrst á dagskrá 3. október 2023, síðast 5. október 2023. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 5. október 2023, frá 1:25:52
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
- Upptaka af umræðu
-
2023
Bæjarráð, fundur 816 liður 10
Framlagt samkomulag Sambands íslenskra sveitarfélaga og BSRB um viðbótarlaun á einstök starfsheiti í leikskólum og heimaþjónustu en gert er ráð fyrir að niður falli greiðslur sem samþykktar voru um viðbótarlaun af sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir að útfærð verði aðlögun viðbótargreiðslna samanber minnisblað um breytingar sem þarf að gera. Vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 360 liður 12
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu vegna aðlögunar viðbótargreiðslna í leikskólum og heimaþjónustu.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar samþykkt um að útfærð verði aðlögun viðbótargreiðslna á einstök starfsheiti í leikskólum og heimaþjónustu í framhaldi af samkomulagi BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga og kjarasamningum Starfsgreinasambandsins sem tengjast því. Lagt er til að innleitt verði samkomulag aðila frá 14. júní 2023 hjá umræddum aðilum en viðbótarlaun þeir lækki ekki niður fyrir upphæð viðbótargreiðslu sem bæjarstjórn staðfesti 21. febrúar 2022.
Til máls tók Birgir Jónsson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögu um aðlögun viðbótargreiðslna að samþykkt sveitarfélagsins
Upptaka bæjarstjórnarfundar 360. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 1:25:52 um er að ræða samþykkt um að útfær verði aðlögun viðbótargreiðsla á sérstök starfseit í leikskólum á heimaþjónustu í framhaldi af samkomulagi bsr bo ákveðinna félag innan starfsgreina sambandsins og sambandsvísast við samband íslenskra sveitarfélaga og við þetta eru gert ráð fyrir að niðurfalli greiðslu sem samþykktar voru viðbótarlaun af sveitarfélaginu en
- 1:26:20 það felur ekki í sér lækkun á því sem hafði áður verið samkomulag sem var gilti um starfsfólkið leikskólum og var staðfest á bæjastu tuttugasta febrúar tugasta og tvö að með þessari samþykkt þá lækka ekki laun þess starfsfólk sem að sú samþykkt tók til
- 1:26:48 orðið laust um þennan lið
- 1:27:16 starfsfólks í matartímum til dæmis til að svona reyna að koma til móts við starfsfólk og hvetja til og svona vera hvati varðandi það að fá fólkið í þessu störf og það gleður mig að þetta skuli vera komið með þessu samkomulagi að inn í miðlaga kjarasamninga sem svona hvati fyrir fólk til að sækja þessi störf eins og kom fram hérna áðan að þá er það barátta ekki bara hér heldur annars staðar líka að
- 1:27:44 ekki bara hér heldur annars staðar líka að fá fólk til að vinna þessi mjög svo mikilvægu störf þannig að mér finnst við bóta allan að að þetta sé komið í miðlaga kjarasamning orðið er laust um þetta mál mér sýnist enginn vera að biðja um orðið og þá ætla ég að bera upp til samþykkta bæjarstjórnar samþykktum eða samkomulag um viðbótarlaun eð viðbótagreiðstur í leikskólum
- 1:28:12 eða viðbótargreiðstur í leikskólum heimaþjónustu þau sem það samþykkja vinsælaskjafamerki það er samþykkt með nýju atkvæðum þá erum við komin að lokum í dag dagskrá fundarins er tæmd og það verður boðað til næsta bæjarstjórnarfundar að nítjánda október með dagskrá ég þakka ykkur öllum fyrir fundasetuna og segi fundið slitið
-
Bæjarstjórn, fundur 360 liður 3.10
Fundargerðin „Bæjarráð - 816“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.