Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2022

Ytra mat leikskóla 2023

Mál 2210015 Fyrst á dagskrá 26. október 2022, síðast 8. nóvember 2022. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2022

    Fræðslunefnd, fundur 117 liður 3

    Menntamálastofnun mun framkvæma ytra mat á leikskólum árið 2023, sbr. lög nr. 90/2008 um leikskóla og gildandi reglugerðir um mat og eftirlit. Stofnunin hefur auglýst eftir sveitarfélögum sem hafa áhuga á því að fram fari ytra mat á starfi leikskóla innan þeirra sveitarfélaga. Í matinu felst að utanaðkomandi aðilar leggja mat á starfsemi viðkomandi leikskóla með hliðsjón af gildandi lögum, reglugerðum og aðalnámskrá. Á undanförnum árum hefur verið framkvæmt ytra mat á Dalborg og Lyngholti. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að leggja inn umsókn fyrir leikskólann Eyrarvelli að þessu sinni.

  2. Bæjarráð, fundur 771 liður 31.3

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 117“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 341 liður 4.3

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 117“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is